Vísindaveisla kennara í Birmingham
Fréttir|3. júlí 2015
NaNO við Menntavísindasvið HÍ hvetur til hópferðar kennara á árlega ráðstefnu Association for Science Education (ASE) sem haldin verður dagana 6. til 9. janúar 2016 í Háskólanum í Birmingham á Bretlandi. Ráðstefnan er fyrir leik-, grunn- og framhaldsskólakennara með fjölbreytt efni sem nýtist í kennslu.
Ráðstefnan er tilvalið tækifæri til starfsþróunar og símenntunar hjá kennurum sem kenna náttúrufræðigreinar. Hún er vettvangur til tengslamyndunar í hópi kennara, bæði innan íslenska hópsins og með erlendum kollegum.
Ferðakostnaður
- Flug um 25 til 30 þúsund krónur til London og 15 til 30 þúsund krónur fyrir lestarferð til Birmingham (1,5 klst.)
- Flug um 60 til 75 þúsund krónur til Birmingham (með millilendingu).
- Ráðstefnugjaldið er 348 pund (rúmlega 70 þúsund krónur). Ráðstefnugjaldið er lægra fyrir ASE-félaga eða 166 pund (um 35 þúsund krónur) og því gæti borgað sig að ganga í samtökin.
- Að auki er unnt að fá 15% hópafslátt þegar íslenski hópurinn skráir sig saman.
- Snemmskráning er til 23. október 2015. Eftir þann tíma hækkar gjaldið. Ráðstefnugjaldið er því á bilinu 35–80 þúsund krónur eftir því hvaða leið er farin. Kostnaður við gistingu bætist við.
- Endurmenntunarsjóðir KÍ geta styrkt félaga um ferða-, gisti- og ráðstefnukostnað.
Áhugasamir um þátttöku í hópferð á ASE eru beðnir að hafa samband við Birgi U. Ásgeirsson hjá HÍ – birgira@hi.is fyrir 1. september 2015.