Virkjum jöfnunartækið okkar

„Skólinn er, eða á að vera, okkar jöfnunartæki. Sá staður þar sem öll börn og ung menni upplifa öryggi og inngilding er hluti menningar,“ skrifar Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ.
Hatursorðræða, fordómar og árásir í garð hinsegin barna og ungmenna hafa aukist að undanförnu. Það sama má segja um jaðarhópa eins og börn af erlendum uppruna. Þetta er þróun sem sporna þarf við á öllum vígstöðvum. Þar leikur skólinn lykilhlutverk.
Skólinn er, eða á að vera, okkar jöfnunartæki. Sá staður þar sem öll börn og ungmenni upplifa öryggi og inngilding er hluti menningar. Þar sem það telst sjálfsagt að við búum í margbreytilegu samfélagi þar sem við erum samþykkt, sama hver uppruni okkar, trú og kyntjáning er. En hvernig förum við að því að tryggja það?
Kennarinn lykillinn
Kennarinn leikur lykilhlutverk. Hann sáir þeim fræjum sem fylgja nemendum í gegnum skólakerfið og svo út í lífið, og hann þarf að treysta sér í verkið. Til þess þarf að valdefla kennara. Það þarf menntun, fræðslu og þjálfun, bæði í kennaranáminu sjálfu og starfsþróun.
Fræðsla er lykilatriði og hefur áhrif á hvaða fordæmi kennari sýnir, hvað hann kennir og tekur til umræðu, og hvernig. Kennarinn þarf að hafa þekkingu og jafnréttisnæmni til að geta gripið inn í þegar upp koma aðstæður sem kalla á inngrip hans.
Það þarf að veita kennurum rétt verkfæri, góð starfsskilyrði og rými til að sinna starfsþróun
Tækifærin leynast víða
Þess utan þarf að veita kennurum rétt verkfæri, góð starfsskilyrði og rými til að sinna starfsþróun. Þar koma skólastjórnendur og stjórnvöld inn. Þessir aðilar þurfa að tala saman og vera á einu máli um mikilvægi málaflokksins, líka kennarinn. Því ekki má gleyma mikilvægi þess að kennarar komi að ákvarðanatöku í menntamálum.
Hér er að finna tækifæri fyrir stjórnvöld til þess að gera inngildingu og hugmyndina um skóla án aðgreiningar skýran hluta af stefnumótun í menntamálum og í opinberri stefnu. Þannig væri hægt að ganga úr skugga um að það væri ekki einstakra kennara eða skóla að velja hvort fylgja ætti sjónarmiðum inngildingar, heldur meginregla. Fjármagn og viðeigandi aðgerðir þyrftu að fylgja slíkri stefnu ef vel ætti að takast til.
Jafnréttisnám frá upphafi
Þá komum við að nemendunum. Það þarf að taka almennilega utan um þá nemendur sem verða fyrir fordómum og aðkasti og fylgja eftir þeim málum sem hafa kallað á inngrip. Það sama á við um gerendur. Þeir þurfa aðstoð, fræðslu og stuðning svo hægt sé að uppræta hegðunina.
Svo má ekki gera lítið úr hlutverki og mikilvægi foreldra. Skólakerfið getur ekki eitt staðið skil á sínu. Það þarf samvinnu við heimilin og foreldra, enda megin ábyrgðin þeirra á að ala upp börnin.

Það þarf að taka almennilega utan um þá nemendur sem verða fyrir fordómum og aðkasti og fylgja eftir þeim málum sem hafa kallað á inngrip
Tímasetningin getur einnig skipt sköpum. Ef lögð er áhersla á jafnréttisnám og -kennslu strax frá upphafi; í kennaranámi og í leikskólanum, eru meiri líkur á að jafnréttishugsun og inngilding fléttist inn í alla kennsluþætti og öll skólastig. Þannig geta börnin eflst strax frá upphafi og þróað með sér næmni sem fylgir þeim út í lífið og smitast þar með út í samfélagið.
Úr Skólastefnu KÍ
„Menntun á að efla félagslegan, siðferðilegan og vitsmunalegan þroska nemenda og stuðla að vellíðan og jákvæðri sjálfsmynd hvers og eins. Menntun á að greiða fyrir að nemendur geti unnið saman með samkennd og mannúð að leiðarljósi. Nám á að eiga sér stað í vistfræðilegu, fjölmenningarlegu og þverfaglegu samhengi.“
„Allir nemendur eiga rétt á að njóta upplýsinga, menningar, vísinda, tengsla við aðra og jafnra tækifæra í skólanum, óháð breytum á borð við félagslega stöðu, búsetu, kyn, kynhneigð, líkamsgerð, móðurmál og námsgetu.“
„Kennarar hafa lykilhlutverki að gegna við þróun og mótun skóla og menntunar. Þeir búa yfir víðtækri sérfræðiþekkingu og reynslu á sviði kennslu, miðlunar og menntunar sem þeir miðla innan sem utan skólans til nemenda, foreldra og samfélagsins alls. Kennarar þurfa að hafa bjargir sem styðja við starfsþróun þeirra og fjölga tækifærum til starfsþróunar.“
Hér er hægt að kynna sér Skólastefnu KÍ.