Vinsæl fræðsla um börn á flótta aftur í boði - FRESTAÐ

Fréttir|15. mars 2023

Boðið er á ný upp á almenna fræðslu fyrir kennara um stöðu og réttindi flóttafólks og áhrif áfalla á líðan, heilsu og hegðun barna. Í þetta sinn er sérstök áhersla lögð á fræðslu fyrir framhaldsskólakennara og leikskólakennara þó flestir geti haft gagn af. Síðast sóttu rúmlega 600 kennarar fjarnámskeiðið.

Búið er að fresta námskeiðunum. Nýjar dagsetningar verða auglýstar innan skamms.

Fræðsla fyrir framhaldsskólakennara fer fram mánudaginn 20. mars og fræðsla fyrir leikskólakennara þriðjudaginn 21. mars. Bæði námskeið fara fram á netinu og hefjast klukkan 14.

Markmið fræðslunnar er að stuðla að betri skilningi á lífi barna á flótta og kanna hvað kennarar geta gert til þess að styðja við nám og vellíðan þeirra. Kynntar verða hugmyndir að verkfærum og stuðningi sem stendur börnunum til boða.

Fræðslan er samstarfsverkefni Kennarasambands Íslands, Barna- og fjölskyldustofu, Rauða krossins og UNICEF á Íslandi.

Dagskrá

14:00 Dagskrá hefst

14:05 Hugtakanotkun og staða réttinda barna á flótta, UNICEF á Íslandi

14:15 Áföll og sálfélagslegur stuðningur við börn á flótta, Rauði krossinn

14:45 Flóttabörn og farsældarlögin, Barna- og fjölskyldustofa

15:05 Hlé

15:10 Reynsla kennara af móttöku barna á flótta

15:25 Umræður

15:45 Dagskrá lýkur

Gríðargóð þátttaka

Fræðslan fór fyrst fram í janúar við góðar undirtektir en þá sóttu rúmlega 600 kennarar fjarnámskeiðin tvö. Almenn ánægja var með fræðsluna og ljóst að mikill áhugi er á málefninu innan skólasamfélagsins, og þörf á meiri stuðningi og stefnumótum varðandi móttöku barna á flótta í skólum landsins.

Fjöldi barna á flótta á Íslandi hefur aukist hratt á undanförnum árum og árið 2022 varð sérstaklega mikil fjölgun í kjölfar stríðsins í Úkraínu. Börn á flótta er viðkvæmur hópur sem algengt er að hafi upplifað áföll, og því mikilvægt að umönnunaraðilar þekki helstu einkenni og afleiðingar áfalla á líðan og heilsu barna. Þá er mikilvægt að kennarar og annað starfsfólk skóla geti gripið til gagnlegra verkfæra og leitað eftir stuðningi þegar við á.