Vinnuverndarvika 2015
Dagana 19. til 23. október nk. er vinnuverndarvika Evrópsku vinnuverndarstofnunarinnar. Þetta árið er fjallað um streitu og er yfirskriftin „Góð vinnuvernd vinnur á streitu“. Talið er að þriðjungur kennara þjáist af mikilli streitu og/eða kulnun. Vinnustreita er ástand sem einstaklingur upplifir þegar kröfurnar í vinnunni eru meiri en einstaklingnum finnst hann ráða við. Langvarandi streita getur leitt til kulnunar og haft alvarleg áhrif á heilsufar, vinnugleði og líðan.
Vinnuumhverfisnefnd KÍ vill hvetja kennara og skólastjórnendur til að huga að starfsumhverfi sínu í tilefni af vinnuverndarvikunni, sérstaklega með tilliti til álags og streitu.
GAGNLEGAR UPPLÝSINGAR:
- Á vef KÍ er að finna upplýsingar um orsakir og afleiðingar streitu og ýmsan annan fróðleik. Þar er einnig að finna ráð til vinna gegn streitu, bæði persónulega og á vinnustað, sjá hér. Sérstaklega er bent á fræðslumyndbönd KÍ um streitu og tengd málefni hér: ki.is/fraedsla.
- Á vef Vinnuverndarstofnunar Evrópu er að finna margvísleg ráð og verkfæri til að stjórna streitu og sálfélagslegurm áhættum á vinnustað.
- Á vef embættis landlæknis er að finna ráðleggingar tengdar geðrækt fullorðinna og heilsueflingu fullorðinna, ásamt bæklingnum Ráðleggingar um heilsueflingu á vinnustöðum.
- Á vefsíðu VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs er að finna upplýsingar um andlega líðan á vinnustað og margvíslegt fræðsluefni (t.d. Tíu gleðiráð), sjá hér.
Í tilefni af vinnuverndarvikunni heldur Vinnueftirlitið ráðstefnu fimmtudaginn 22. október kl. 13:00 til 16:00 í Gullteigi á Grand Hóteli Reykjavík. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis. Bein útsending verður frá ráðstefnunni á YouTube rás Vinnueftirlitsins. Sjá auglýsingu hér.