Vinnuumhverfi, leikurinn og styttri vinnuvika tengist allt

„Raunveruleikinn er sá að það vantar ótrúlegan fjölda af leikskólakennurum til að geta skapað vinnuumhverfi sem fyllir upp í væntingar leikskólakennarans, þannig að hann hafi samstarfsfélaga sér við hlið sem hefur sömu menntun, sömu sýn og sömu markmið. Þetta hefur klárlega áhrif á líðan leikskólakennarans sem brennur fyrir sínu starfi og hefur mikinn metnað," segir Hólmfríður K. Sigmarsdóttir sem á að baki áratuga langa reynslu sem leikskólakennari.
Það er alltaf spurning hvað maður er að horfa á þegar maður er að horfa á vinnuumhverfið. Það er svo margþætt,“ segir Hólmfríður K. Sigmarsdóttir sem lauk námi frá Fósturskóla Íslands árið 1977 og segist hafa nánast unnið óslitið í leikskólum síðan, en hún tók sér í allt um þriggja ára hlé frá þeim störfum, þar til hún hætti störfum í fyrrahaust.
„Grunnþátturinn í því út frá mínu sjónarhorni er að leikskólakennarinn upplifi að vinnuumhverfið fylgi honum sem fagmanni, að hann finni að hann sé virtur sem slíkur. Erum við virt sem fagmanneskjur og er hlustað á okkur og okkar faglega innlegg haft að leiðarljósi við mótun leikskólastarfs? Þetta þarf að hafa til viðmiðunar þegar horft er til vinnuumhverfis leikskólakennara.
Varðandi styttingu vinnuvikunnar þá hef ég ekki persónulega reynslu af því að vinna við þær aðstæður. Ég lét af störfum þegar verið var að vinna að skipulagningu þess. En af samtölum mínum við kollega sem eru enn á vettvangi heyri ég að á sama tíma jókst einnig orlofsréttur allra starfsmanna upp í 30 daga á ári og undirbúningstími kennara jókst.
Aukning undirbúningstíma leikskólakennara hefur lengi verið baráttumál og út frá umræðu um starfsaðstæður er tilkoma viðbótar í þeim efnum klárlega til bóta.
Ef ég horfi á vinnuumhverfið út frá mér sem persónu og ef við tengjum það saman við styttingu vinnuvikunnar þá er það klárlega betra fyrir mig sem starfsmann að fækka vinnustundunum sem ég þarf að vera á vinnustaðnum. Svo þarf maður líka að horfa á það út frá því sjónarhorni hvernig manni líður í vinnunni og þar finnst mér skipta svo miklu máli, og ég er búin að horfa svo mikið til þess, hvert leikskólinn er að þróast,“ segir Hólmfríður.
Leikskólakennarinn er sérfræðingur
„Lögin segja að leikskólinn sé fyrsta skólastigið, hann eigi að vera fyrir börnin og grunnþátturinn sem eigi að vinna út frá og það sem við leikskólakennarar leggjum upp með í fagmennsku okkar sé að börn læri best í gegnum leik. Leikskólakennarinn er þar sérfræðingur; hann er búinn að mennta sig til þess í viðurkenndum stofnunum. Þegar út í vinnuumhverfið kemur þá er það þannig að lögin segja að leikskólakennarinn sé sérfræðingur og starf leikskólans skuli byggja á hans faglegu þekkingu. En svo er ákvæði í lögunum sem segir að ef ekki fæst starfsfólk með menntun þá megi ráða annað starfsfólk með annars konar menntun eða jafnvel litla sem enga. Þetta er raunveruleikinn okkar,“ segir Hólmfríður og bendir á að samkvæmt Hagstofu Íslands hafi árið 2018 einungis 28% leikskólastarfsmanna verið menntaðir leikskólakennarar.
„Raunveruleikinn er sá að það vantar ótrúlegan fjölda af leikskólakennurum til að geta skapað vinnuumhverfi sem fyllir upp í væntingar leikskólakennarans, þannig að hann hafi samstarfsfélaga sér við hlið sem hefur sömu menntun, sömu sýn og sömu markmið. Þetta hefur klárlega áhrif á líðan leikskólakennarans sem brennur fyrir sínu starfi og hefur mikinn metnað,“ segir Hólmfríður.
Raunveruleikinn er sá að það vantar ótrúlegan fjölda af leikskólakennurum til að geta skapað vinnuumhverfi sem fyllir upp í væntingar leikskólakennarans.
Hún segir að eins og staðan sé í dag þá setji sveitarstjórnir sér markmið um fjölgun leikskólarýma og foreldrar kalli eftir aukinni þjónustu.
„Því er fylgt eftir sem gerir það að verkum að við opnum og fjölgum leikskólum og leikskólarýmum til að mæta þessari kröfu sem hefur með það að gera að sífellt lægra hlutfall þeirra sem starfa í leikskólum hefur menntun á því sviði. Þessi þróun tengist því klárlega hvernig leikskólakennaranum líður í sínu starfsumhverfi. Ég upplifi það að í mörgum tilfellum ná leikskólakennarar ekki þeim markmiðum sem þeir sem fagmenn vilja ná. Stór hluti tíma þeirra fer í að þjálfa annað starfsfólk sem hefur ekki grunnmenntunina og þekkinguna, en er yndislegt fólk og allt af vilja gert. Þeir einstaklingar stoppa hins vegar oft mjög stutt við þannig að þessi þjálfun er stöðugt í gangi sem þyngir starfsumhverfi leikskólakennarans svo mikið. Þetta er svo þreytandi þáttur. Fólk sem hefur aðra háskólamenntun, eða jafnvel enga menntun, og ræður sig inn í leikskólana vantar í flestum tilfellum grunnmenntunina sem leikskólakennarinn hefur þannig að markmiðin og gildin geta verið ansi mikið öðruvísi.“
Leikurinn sem námsleið
Hólmfríður nefnir ýmsa sérfræðinga sem koma inn í leikskólana. „Þeir horfa allt öðruvísi á nám barna heldur en leikskólakennarinn sem horfir á námið í gegnum leik. Leikskólakennarinn á að vera meðvitaður um hvaða hlutverki hann hefur að gegna í leik barnsins á meðan svo margar aðrar stéttir sem koma inn í skólana hafa markmið kennslu og þjálfunar að leiðarljósi.“
Hólmfríður segir að til þess að leikurinn geti orðið að námsleið verði að vera umhverfi og aðstæður til að hann geti fengið að þróast sem slíkur. „Ef farið er að skipuleggja leikskólastarfið svo þétt með dagskipulagi og jafnvel stundaskrá að það sé alltaf verið að brjóta upp leikinn hjá börnunum þá erum við farin að búa til hindranir fyrir því að leikurinn fái að þróast sem námsleið barnsins. Þessi þrjú atriði fléttast svolítið mikið saman því þá erum við líka farin að tala um styttingu vinnuvikunnar. Það jákvæða við styttingu vinnuvikunnar út frá starfinu í leikskólanum er að ef starfsfólk fer ekki út af deildunum í kaffitímum þá getur leikurinn fengið miklu meira flæði. Hann getur fengið óheftan tíma til að flæða og flæðið er meðal annars það sem þarf að nást upp í leiknum til að hann verði að námsleið barna.“
Hólmfríður segir að margir leikskólakennarar hafi talað um það í mörg ár fyrir daufum eyrum hvað rými leikskólans og tími skipti miklu máli varðandi leikinn. „Það var áður inni í reglugerð ákveðið viðmið varðandi fjölda barna í hverju rými; en það er svolítið í lausu lofti í dag hvernig það er útfært og ekki föst viðmið í lögum eða reglugerðum. Leikskólakennarar hafa mikið verið að höfða til þess að til að leikurinn nái að þróast og verða að námsleið þá þurfi umhverfi leikskólans að taka mið af því; það skipti máli að börnin séu ekki eins og síld í tunnu, ef ég má orða það þannig, og að það sé ekki þröngt og stöðugt áreiti í stað gæðaleiks. Mér finnst vanta dálítið mikið upp á að það sé skilningur á þessari umræðu okkar og ákalli sem fagaðila. Það eru þessir tveir þættir, tími og rými, sem skipta mjög miklu máli og að rödd leikskólakennarans fái að heyrast betur og verði ekki kaffærð.
Það er svo merkilegt þegar samið er um styttingu vinnuvikunnar að vinnuveitendur og launþegar semja og samningurinn hljóðar upp á að það megi ekkert kosta. Og sveitarstjórnarmenn tala um að þjónustan megi ekki skerðast. Eins og er verið að framkvæma þetta í dag þá gerist það á þann hátt að þegar fólk fer í vinnustyttingu þá fækkar starfsmönnunum sem eru á viðkomandi deild sem segir okkur að þá minnkar þjónustan við börnin. Þá spyr maður sig hvort það sé réttlætanlegt. Börnin hafa engan aðila við samningaborðið. Foreldrar þeirra ættu að vera málsvarar þeirra en ég held að þeir átti sig því miður ekki fyllilega á því hvernig framkvæmdin getur aldrei orðið á annan hátt meðan þetta má ekki kosta neitt. Það verður skert þjónusta við börnin,“ segir Hólmfríður.
Viðtalið við Hólmfríði birtist í Skólavörðunni, 2. tölublaði 2021.