Vinnuumhverfi kennara – hvað má gera betur?

Gunnhildur Gísladóttir, iðjuþjálfi MSc og vinnuverndarráðgjafi, og Svava Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og vinnuverndarráðgjafi, fjalla um vinnuumhverfi kennara í aðsendri grein.
Atvinna er stór partur af lífi okkar flestra. Þar eyðum við að jafnaði 30-36 klukkustundum á viku, stundum meira. Margt í vinnuumhverfinu stuðlar að heilsu og vellíðan en annað getur verið skaðlegt heilsu starfsfólks og það á einnig við um kennarastarfið. Samkvæmt Vinnuverndarstofnun Evrópu eru verulegar vinnuverndarhættur í vinnuumhverfi kennara; stoðkerfisvandi vegna langvarandi setu og vegna endurtekinna hreyfinga handleggja og handa, heyrnarskerðing vegna hávaða og sálfélagslegt álag vegna samskipta við nemendur og foreldra. (ESENER, 2019).
Stoðkerfisvandi fyrirferðamikill
Við hjá ÖRUGG verkfræðistofu höfum verið að skoða þessa þætti sérstaklega hjá kennurum til þess að geta aðstoðað við að koma í veg fyrir þá þróun sem getur orðið í vinnuumhverfi kennara hér á landi. Það er sorgleg staðreynd að 60% allra veikindafjarvista í Evrópu eru vegna verkja í stoðkerfi, sérstaklega í baki og efri útlimum. Þessum veikindafjarverum vegna stoðkerfisvanda fylgir mikill kostnaður fyrir vinnustaði og samfélagið, að ógleymdum einstaklingnum sjálfum. Það má teljast með ólíkindum að þessi tala sé svona há því að í áratugi hefur verið vitað hvernig best er að beita líkamanum, bæði sitjandi, standandi og í öðrum stellingum sem vinnuaðstæður krefjast.
Vandinn liggur kannski í því að, þrátt fyrir að rannsóknir sýni þessar niðurstöður, skortir á að vinnuverndarhugsun sé samofin öðru innra starfi vinnustaða. Stoðkerfisvandi starfsfólks er nefnilega eitthvað sem allir vinnustaðir þurfa að taka alvarlega og vinna markvisst að forvörnum til að koma í veg fyrir að fleiri bætist í hóp þeirra sem þjást af verkjum og falla af vinnumarkaði.
Vinnuaðstaðan úr takti við tímann
Vinnuumhverfi kennara hefur breyst töluvert undanfarin ár og má segja að skrifstofa kennara sé kennslustofan – en þó eru kennslustofur fæstar með þann búnað sem skrifstofur hafa í dag; rafmagnshækkanleg skrifborð, skrifstofustól með mörgum stillimöguleikum, úrval tölvuskjáa og þráðlausar mýs og lyklaborð. Lítið hefur verið hugsað um að þróa vinnuaðstöðu kennara í takt við tímann og enn eru margir kennarar að bera fartölvu, bækur og önnur kennslugögn á milli stofa.
Í könnun sem gerð var í Bretlandi árið 2018 kom í ljós að 73% kennara höfðu fundið fyrir verkjum í hálsi og herðum, 53% höfðu upplifað verki í hnjám og 33% höfðu glímt við vandamál í mjöðmum. Í heildina höfðu 82% kennara fundið fyrir stoðkerfisverkjum að minnsta kosti einu sinni í viku. (Vergo.uk, 2018).
Koma má í veg fyrir flestan stoðkerfisvanda með einföldum ráðstöfunum, áhættumati og forvarnaáætlunum. Vinnuverndarteymið hjá ÖRUGG verkfræðistofu leiðbeinir og fræðir starfsfólk um bætta líkamsbeitingu, hjálpar fyrirtækjum að búa vel að starfsfólki sínu og fylgir því eftir að vellíðan allra á vinnustaðnum sé eins og best verður á kosið. Vinnuvernd er ekki afgreidd í eitt skipti og síðan ekki söguna meir. Það þarf með reglubundnum hætti að meta áhættu í störfunum, gera forvarnaáætlun og fylgja því eftir að úrbætur séu gerðar.
Það eru ekki einungis starfsfólkið og vinnustaðurinn sem græða á því að huga að forvarnaþáttum, heldur samfélagið allt, þar sem sjúkrakostnaður lækkar og álag á heilbrigðiskerfið minnkar. Á hverju ári tapar þjóðfélagið tugum milljarða vegna skaða sem mætti koma í veg fyrir.
Mikið sálfélagslegt álag á kennurum
En það er fleira sem telst til áhættu í starfi kennara. Sálfélagslegt álag á kennurum er gífurlegt. Nýleg íslensk rannsókn sýnir að þeir sem hafa fallið af vinnumarkaði, hvort sem það er í lengri eða skemmri tíma, hafa frekar þurft að kljást við krefjandi viðskiptavini, þjónustunotendur eða nemendur heldur en það starfsfólk sem helst í starfi. (Félagsvísindastofnun, 2022). Flestir kennarar eru í sífelldum samskiptum við bæði börn, foreldra, forráðamenn og margvíslegar fagstéttir. Samskiptin geta verið flókin og krefjandi og reyna á marga þætti í samskiptahæfni kennara.
Einelti, áreitni og ofbeldi er alvarlegt vandamál sem getur haft neikvæð áhrif á líðan, sjálfstraust og heilsu starfsfólks og það snertir alla á vinnustaðnum. Vinnustöðum ber að hafa aðgerðaáætlun sem tekur á einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi (EKKO-málum) með skýrum hætti. ÖRUGG verkfræðistofa veitir vinnustöðum ráðgjöf við að móta stefnu sem endurspeglar þá samskiptamenningu sem vinnustaðurinn vill hafa og aðstoðar við að greina aðstæður og áhættuþætti sem ýta undir ósæmilega hegðun og framkomu við starfsfólk.
Nauðsynlegt að tryggja öruggt skólaumhverfi
Frá Bandaríkjunum berast þær tölur að þrír af hverjum fjórum skólum þar í landi upplifi eitt eða fleiri ofbeldisverk á ári hverju. Kennarar og starfsfólk skóla eru með hæstu tíðni líkamsárása á vinnustað og eru í stöðugri baráttu við að taka á hegðunarvandamálum nemenda, svo sem bitum og slagsmálum. (berkeley.edu). Við viljum ekki að skólaumhverfi á Íslandi færist í þessa átt og því þarf að huga að öryggismálum strax, ekki eftir að skaðinn er skeður. Með markvissum forvörnum, fræðslu og leiðum til að fyrirbyggja óæskilegar aðstæður, slæm samskipti og neikvæða hegðun á vinnustað er hægt að draga verulega úr hættu á EKKO-málum og afleiðingum þeirra fyrir einstaklinga og vinnustaði. Í framhaldi kemur ÖRUGG með tillögu að viðbragðsáætlun, bæði við einelti og áreitni og einnig við hótunum og ofbeldi sem starfsfólk getur orðið fyrir í störfum sínum.
Öryggismál eru samskiptamál. Sköpun öryggismenningar er ekki einkamál öryggisstjóra eða fámenns hóps, heldur verður sterk öryggismenning til þegar stjórnendur láta sig málið varða og fá alla í lið með sér. Vinnuverndarteymið hjá ÖRUGG verkfræðistofu leggur áherslu á að koma inn á vinnustaði og aðstoða við að koma á góðum samskiptum og vellíðan og fá fram hjá starfsmannahópnum hvað sé hægt að gera til að bæta og efla vinnustaðamenninguna.
Vinnustaður þar sem ríkir vellíðan og góð heilsa og vinnuumhverfið er gott skilar sér í ánægðara starfsfólki. Að hugsa um heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks styður við betri ímynd vinnustaðarins og eykur árangur innan hans.
Heimildir
Ásdís A. Arnalds, Guðbjört Guðjónsdóttir, Guðný Bergþóra Tryggvadóttir (2022). Einkenni starfa, vinnuumhverfi og ástæður brotthvarfs af íslenskum vinnumarkaði. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.
Ergonomic Tips for Teachers: A Complete Guide - Vergo UK, (2018).
European Survey of Enterprises on New and Emerging Risks (ESENER) (2019). Third European Survey of Enterprises on New and Emerging Risks (ESENER 2019): Overview Report How European workplaces manage safety and health | Safety and health at work EU-OSHA (europa.eu)
School Action for safety and Health (SASH) program, (2021). Teaching in a safe classroom: (berkeley.edu)