Vinnuumhverfi barna og fullorðinna í leikskólum

Fagleg rök eru virt að vettugi þegar ákveða á fjölda barna í rými.
Ný skýrsla leiðir í ljós að stjórnendur leikskóla eiga margir hverjir á brattann að sækja þegar kemur að samráði þeirra og rekstraraðila. Fagleg rök eru jafnvel virt að vettugi þegar ákveða á fjölda barna. Þetta er meðal niðurstaðna vinnu starfshóps sem Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda leikskóla skipaði árið 2020 í kjölfar háværrar umræðu meðal leikskólakennara og stjórnenda um vinnuaðstöðu barna og fullorðinna í leikskólum. Kallað hefur verið eftir endurskoðun reglugerðar um starfsumhverfi leikskóla 655/2009 þar sem hvergi er minnst á lágmarksrými barna við nám og leik eða fullorðinna við vinnu.
Starfshópurinn skilaði skýrslu um rými, réttindi og starfsaðstæður barna og fullorðinna í leikskólum og um samráð leikskólastjóra og rekstraraðila. Starfshópurinn leggur eftirfarandi til:
- Bæta þarf inn í reglugerð um leikskóla lágmarksviðmiði um stærð leikrýmis sem tilheyrir leikskóladeild, þ.e. þess svæðis sem nýtist til leiks og náms allan daginn. Í samræmi við niðurstöður kannananna leggur starfshópurinn til að það viðmið verði ekki minna en 5,8 m2 fyrir hvert barn.
- Taka þarf tillit til reglugerðar um húsnæði og vinnustaði 581/1995 um lágmarksviðmið um rými fyrir hvern fullorðinn. Gera skal ráð fyrir 4,8 m2 til viðbótar við það rými sem tilheyrir hverju barni.
- Gera þarf ráð fyrir rými fyrir stoðtæki vegna sérþarfa barna.
- Samkvæmt núgildandi reglugerð um starfsumhverfi leikskóla á leikskólastjóri að taka ákvörðun um fjölda barna, að höfðu samráði við sveitarstjórn eða nefnd sveitarfélags sem fer með málefni leikskóla í sveitarfélaginu. Setja þarf markvissar verklagsreglur um slíkt samráð svo umboð leikskólastjóra verði afdráttarlaust til að taka ákvörðun um barnafjölda í leikskólum hverju sinni.
Starfshópurinn afhenti formönnum Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla skýrsluna og munu þeir funda með hagaðilum í framhaldinu.

Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, Sigrún Birna Björnsdóttir, fulltrúi starfshópsins, og Sigurður Sigurjónsson, formaður Félags stjórnenda leikskóla.