Vinnusmiðja í textíl

Fréttir|9. október 2023

Fimmtudaginn 28. september sl. stóð Faghópur um skapandi leikskólastarf fyrir vinnusmiðju í textíl. Það voru  hressar og áhugasamar konur sem mættu í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð þennan fimmtudagsmorgun til að taka þátt. Þátttakendum var skipt niður í tvær skólastofur og eftir hádegið skiptu hóparnir um stofu. Námskeiðið var tvískipt; Þæfing ullar með vatni og sápu annars vegar og textíl hins vegar. Kennarar voru Guðrún Björnsdóttir textílkennari og listakonan Lisbeth Whal.

Fimmtudaginn 28. september sl. stóð Faghópur um skapandi leikskólastarf fyrir vinnusmiðju í textíl. Það voru  hressar og áhugasamar konur sem mættu í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð þennan fimmtudagsmorgun til að taka þátt. Þátttakendum var skipt niður í tvær skólastofur og eftir hádegið skiptu hóparnir um stofu. 

Námskeiðið var tvískipt; Þæfing ullar með vatni og sápu annars vegar og textíl hins vegar. Kennarar voru Guðrún Björnsdóttir textílkennari og listakonan Lisbeth Whal. 

Í þæfingar hópnum sagði Ingibjörg Ásdís Sveinsdóttir leikskólakennari þjóðsöguna um Unu álfadrottingu til að nota sem kveikju að þæfðu söguteppi. Listakonan Lisbeth Whal sá um kennsluna í þæfingu ullar á annað ullarefni. Þátttakendur fengu þar til gert hvítt þæft efni í söguteppið, poka með ullarkembum í mörgum litum, stóran renning af bóluplasti og handklæði til að leggja undir og taka við vatni. Þá var hafist handa við að leggja ullina á teppið og raða í landslag. Þegar nóg var komið af ull og myndin tilbúin þá var næsta skref að vökva vel með sápublönduðu volgu vatni og nudda og rúlla saman í góðan tíma. Ekki má gleyma bankinu og stappinu.
Í vinnu með börnum er hægt að lofa þeim að stappa/dansa með berum fótum á bóluplastinu sem lagt er beggja vegna þæfingarverksins. En þátttakendur vinnusmiðjunnar notuðu frauðrúllu til að rúlla eftir bóluplastinu. Þegar ull er þæfð er mikilvægt að þræðir hennar flækist vel saman og það krefst  tíma og þolinmæði og töluverðra krafta í höndum. Eining þarf að slengja blauta þæfingar bögglinum fast niður á borð, í því skrefi er stykkið brotið saman þannig að jaðrarnir snúi inn á við, þá er böggullinn látin detta á borð eða gólf allt að 200 sinnum og fer það eftir hversu mikil þæfingin á að vera. Þegar komið var hádegishlé voru sumir ekki búinir að klára þæfinguna sína og var bent á að hægt væri að bleyta upp í stykkinu seinna til að þæfa betur. 

Áður en hafist var handa í hinum hópnum sagði Guðrún frá þeirri vinnu sem hún hefur unnið að með leikskólabörnum á Urðarhóli og sýndi margar fallegar myndir af verkum þeirra. Svo var unnið á margvíslegan hátt með vefnað, þræðingu, saum og jafnvel voru efnin límd saman. Efniviður sem þátttakendum bauðst að nota var af ýmsum toga; perlur, garn, efni, svampur, javi og fleira. Guðrún sýndi okkur að auðvelt er að klippa efnisbút í langa lengju sem hægt er að nota í einfaldan vefnað sem settur er upp á pappaspjald. 

Vinnusmiðjan var mjög lærdómsrík og allir þátttakendur urðu reynslunni ríkari og munu taka með sér gagnlega þekkingu út í leikskólastarfið. Við tókum fullt af myndum sem hægt er að sjá hér. 

Hér er hægt að lesa sér meira til um þæfingu.

Jóhanna Berghild Hergeirsdóttir.