Vinnusmiðja í leiklist með Ásu H Ragnarsdóttur leiklistarkennara

Faghópur um skapandi leikskólastarf býður áhugasömu leikskólafólki upp á vinnusmiðju í leiklist "Að nota kennsluaðferðir leiklistar og leiki með leikskólabörnum" í sal KÍ, Borgartúni 30, Reykjavík fimmtudaginn 28. apríl kl. 17:00-19:30. Kennari verður Ása H Ragnarsdóttir leiklistarkennari með meiru.

Í vinnusmiðjunni verða kennsluaðferðir leiklistar kynntar og rætt hverjar þeirra henta sérstaklega fyrir leikskólabörn. Unnið verður með ævintýri og sögur og þær gæddar lífi með fjölbreyttum skapandi aðferðum leiklistar. Áhersla verður lögð á glens og gleði í þeim verkefnum sem tekin verða fyrir.
Að auki verður aðferðin Sérfræðingskápan kynnt og prófuð. Aðferðin gengur út á það að börnin taka að sér hlutverk sem sérfræðingar. Þau taka þátt í ímyndunarleik þar sem sérfræðingarnir (börnin) nota sérfræðikunnáttu sína til að leysa verkefni.
Þátttaka er ókeypis, en vegna fjöldatakmarkanna gildir reglan fyrstir skrá fyrstir fá.