Vinnumatið lesið, túlkað og útskýrt

Fjarfundaformið nýtist vel í persónulegri þjónustu hjá Félagi framhaldsskólakennara.
Síðsumars 2018 auglýsti Félag framhaldsskólakennara eftir starfsmanni til að sinna erindum félagins sem varða vinnumat. Var það í framhaldi af undirritun kjarasamnings þá um vorið þar sem sérstaklega var tiltekið að hluta af 0,1% iðgjaldi til mennta- og fræðslusjóða skyldi nota til innleiðingar vinnumats í framhaldsskólum. Til starfsins var ráðin Ingibjörg Karlsdóttir sem fram að því hafði starfað sem framhaldsskólakennari í 20 ár. Frá því að hún hóf störf fyrir félagið hefur hún aðstoðað kennara við lestur, túlkun og skilning vinnumats, yfirfarið vinnumat þeirra og verið vinnumatsnefndum innan handar með endurskoðun vinnumats áfanga, setið í vinnuhópi um vinnumat, auk þess að vinna önnur störf fyrir félagið. Þessi vinna hefur að mestu farið fram með fundum, símtölum og tölvupóstum en á tímum covid hafa samskiptin í auknum mæli farið fram á fjarfundum en þeir henta afskaplega vel til skoðunar á vinnumati hvers kennara. Kennarar deila þá vinnumati sínu með Ingibjörgu sem yfirfer og útskýrir það sem kennarar vilja fá upplýsingar um.
Þetta form hefur mælst vel fyrir hvort sem um hefur verið að ræða nýja kennara sem ekki eru vel kunnugir vinnumati eða reynda kennara sem vilja skýringar, mögulega vegna breytinga í vinnumati þeirra. Fyrir þá sem áhuga hafa er hægt að hafa samband við Ingibjörgu í netfangi ingibjorgk@ki.is eða í síma 595 1111.
Vinnumat – síðasti samningur
Í bókun 1 með síðasta samningi Félags framhaldsskólakennara frá 31. mars 2021 er fjallað um sérstakan vinnuhóp sem hefur undanfarið ár tekið saman upplýsingar um vinnumat. Vinnu hópsins er ekki að fullu lokið en það efni sem þegar liggur fyrir er aðgengilegt á heimasíðu Stjórnarráðsins undir flipanum vinnumat framhaldsskólakennara.
Aðdragandinn
Í kjarasamningi, sem undirritaður var 4. apríl 2014, urðu samningsaðilar sammála um að breyta frá hefðbundnum vinnutímakafla kjarasamninga, um árlega vinnuskyldu við kennslu (kennsluskyldu) og tengd störf, yfir í vinnumat. Vinnumat tók við af kjarasamningsákvæðum um 16 klukkustunda vikulega kennsluskyldu framhaldsskólakennara á árinu 2015.
Framkvæmdin - verkefnisstjórn
Skipuð var sérstök verkefnisstjórn sem vann að og hafði yfirumsjón með undirbúningi og innleiðingu vinnumatsins. Unnið var að skilgreiningum á inntaki og umfangi einstakra hluta kennslu og kennslutengdra starfa í samstarfi við fimm sérstakar vinnumatsnefndir sem störfuðu eftir mismunandi faggreinum og sviðum. Sýnishornum um vinnu kennara var safnað og að endingu urðu til alls 11 sýnidæmi sem sýnishorn af mögulegu mati einstakra námsgreina eða greinaflokka. Ár var gefið til þessarar vinnu og efni vinnumats/sýnidæma verkefnisstjórnar síðan borið undir atkvæði félagsfólks í apríl 2015.
Endurmat
Árið 2018 fór fram sérstakt endurmat á vinnumati í framhaldi af niðurstöðu Félagsdóms frá 22. sept. 2016. Var þá samið um sérstaka viðbót við vinnumat til að uppfylla 3. efnisgrein 7. greinar kjarasamnings KÍ og fjármála- og efnahagsráðuneytis (undirritaður var 4. apríl 2014) og taka með því tillit til áhrifa styttingar námstíma til stúdentsprófs á vinnumat.
Vinnumatsnefndir
Innan hvers skóla voru settar á laggirnar vinnumatsnefndir og eru þær samráðsvettvangur um gerð og þróun vinnumats. Hver nefnd er skipuð jafn mörgum fulltrúum kennara og stjórnenda skólans.
Á árinu 2018 var vinnumatsnefndum falið að gera formlegt samkomulag um viðbætur við vinnumatið og endurmetnir námsáfangar mynda frá þeim tíma nýjan kjarasamning um vinnumat.
Vinnutíminn
Ársvinnuskyldu kennara er nú skipt í A-hluta sem er kennsluþátturinn, B-hluta sem eru föst störf sem allir kennarar sinna til viðbótar við kennsluþáttinn og C-hluta sem byggir á sérstökum verkefnum eða viðbótarstörfum sem kennari getur tekið að sér í samráði við skólameistara.
A-hlutinn, alls 1.392 klukkustundir er útfærður í vinnumati áfanga. Mat á vinnu kennara við hvern áfanga er byggt á áfangalýsingu. Vinnumat áfanga skal byggja á málefnalegum tilefnum og hlutlægum viðmiðum. Má þar meðal annars nefna einingafjölda áfanga og fjölda nemenda.
Við þróun vinnumats var gengið út frá 18 vikna önnum þar sem kennslutímabil er 15 vikur en námsmatstími þrjár vikur. Samhliða upptöku vinnumats voru skil milli kennslu og prófatíma afnumin en í kjarasamningi aðila frá 4. apríl 2014 var skýrt tekið fram að áfram verði að gæta þess að nægur tími gefist innan dagvinnuársstarfs kennara til þess að sinna námsmati nemenda. Þannig hafa skóladagatöl í sumum skólum verið skipulögð þannig að námsmatstíminn í lok anna hefur verið styttur en námsmatsdagar færðir í staðinn inn á kennslutímabilið.
