Vinnumat grunnskólakennara kynnt í nóvember
Fyrsta útfærsla verkefnisstjórnar á leiðarvísi að vinnumati grunnskólakennara mun verða aðgengileg á vef nefndarinnar vinnumat.is frá 3. nóvember 2014 til 10. janúar 2015. Útfærslan verður einnig kynnt meðal grunnskólakennara, skólastjórnenda, sveitarstjórna og annarra forsvarsmanna skólamála hjá sveitarfélögum á níu kynningarfundum dagana 10. - 20. nóvember. Bein útsending verður frá tveimur fundum (11. og 14. nóv.) og verður sá fyrri jafnframt tekinn upp og gerður aðgengilegur á vef vinnumatsins. Kynningaráætlunina má sjá í heild sinni hér.
Ath. að fundurinn 18. nóvember í Flensborg Hafnarfirði hefst klukkan 15 en ekki 14:30 eins og áður hafði verið auglýst.
Hagsmunaaðilar vinnumatsins eru hvattir til að kynna sér leiðarvísinn og senda inn athugasemdir á netfang verkefnisstjórnar vinnumat@vinnumat.is. Verkefnisstjórn mun í kjölfarið vinna úr þeim og skila lokaútgáfu til afgreiðslu samningsaðila eigi síðar en 15. febrúar 2015.
Leiðarvísir um vinnumat og breytingar á kjarasamningi verða borin undir atkvæði samningsaðila 20. febrúar 2015 í síðasta lagi og gert ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir eigi síðar en 1. mars 2015.
Nánar um vinnumat grunnskólakennara
Í kjarasamningi FG og SNS frá því í maí í vor er lagður til nýr vinnutímakafli á grundvelli vinnumats. Vinnumatinu er ætlað að jafna vinnuálag milli kennara og styrkja faglegt starf innan grunnskóla, þar sem nám, kennsla, undirbúningur og úrvinnsla kennslu eru forgangsverkefni. Markmið samningsins eru að:
- aðlaga vinnutímaákvæði kjarasamnings að breyttum áherslum í skólastarfi.
- færa útfærslur faglegs starfs skóla og kennara frá samningsaðilum til fagfólks í skólamálum.
- jafna vinnuálag milli kennara.
- móta nýja og bætta umgjörð um kennarastarfið.
- bæta launakjör kennara til framtíðar.
Verkefnisstjórn sem skipuð var um gerð leiðarvísis um vinnumatið hóf störf á vormánuðum 2014 og hefur unnið að drögum að leiðarvísi um vinnumat ásamt kynningarmyndbandi og vefsíðu vinnumat.is sem nýtt verður í kynningarferlinu. Þar má nú finna fundargerðir verkefnisstjórnar.
Verkefnisstjórnina skipa: Guðbjörg Ragnarsdóttir, Hulda Hauksdóttir og Rósa Ingvarsdóttir f.h. FG, Helga Gunnarsdóttir, Helgi Grímsson og Ragnar Þorsteinsson f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga. Svanhildur M. Ólafsdóttir, formaður Skólastjórafélags Íslands, er áheyrnarfulltrúi í verkefnisstjórn og starfsmaður er Svandís Ingimundardóttir.