Vinnumat fellt í Tækniskólanum
Meirihluti kennara í Tækniskólanum hefur fellt vinnumat sem var skrifað var undir fyrir hönd félagsmanna í Tækniskólanum. Þetta er í annað skiptið sem kennarar í Tækniskólanum fella vinnumat en þeir felldu einnig vinnumat í febrúar síðastliðnum.
Vinnumatið er hluti kjarasamnings sem samþykktur var á síðasta ári en í ljósi niðurstöðunnar er nú enn ósamið við kennara í Tækniskólanum.
Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, segir að endurmeta þurfi stöðuna frá grunni. „Nú er ljóst að vinnumati eins og til stendur að innleiða í ríkisreknum framhaldsskólum hefur verið hafnað í Tækniskólanum og þýðingarlaust að vinna áfram að kjarasamningi á þeim grunni. Samningsaðilar þurfa að endurmeta stöðuna og við munum taka næstu daga í að skoða mögulegt framhald á málinu,“ segir Guðríður.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er þessi:
- Á kjörskrá voru 146
- Atkvæði greiddu 116 eða 79,5%
- Já sögðu 42 eða 36,2%
- Nei sögðu 72 eða 62,1%
- Auðir seðlar 2 eða 1,7%
Atkvæðagreiðslan stóð yfir frá því síðdegis á föstudag og henni lauk klukkan 16 í dag.