Viltu starfa við Grunnskóla Hornafjarðar?
Fréttir|10. apríl 2015
Grunnskóli Hornafjarðar auglýsir eftir fólki í eftirtalin störf. Alls eru 270 nemendur í Grunnskóla Hornafjarðar. Skólinn er heilsueflandi, grænfána-skóli sem starfar eftir hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar. Nánar er hægt að kynna sér skólann hér.
- umsjónarkennsla á miðstigi 100%
- heimilisfræðikennsla 100% (afleysing)
- staða stuðningsfulltrúa (afleysing)
Menntunar- og hæfniskröfur
- háskólamenntun og starfsréttindi á viðkomandi sviði
- frumkvæði og jákvæðni gagnvart skólaþróun
- samstarfsvilji, hæfni í mannlegum samskiptum og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Laun samkvæmt kjarasamningum SA og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda skólastjóra á netföngin: eyglo@hornafjordur.is og hulda@hornafjordur.is.
Skólastjórar veita nánari upplýsingar um störfin í síma 470 8400.
Umsóknarfrestur er til 1. júní 2015.