Viltu leigja kennurum sumarhús eða íbúð?

Orlofssjóður KÍ er á höttunum eftir eignum á landsbyggðinni til að leigja á sumri komanda.
Orlofssjóður KÍ auglýsir eftir sumarhúsum eða íbúðum til leigu í sumar. Um er að ræða tímabilið frá 1. júní til 22. ágúst. Ekki er skilyrði að leigan gildi allt tímabilið.
Eftirspurn félagsfólks eftir orlofseignum er gríðarleg, enda hægstæðasta leið íslendinga til að ferðast um eigið land, að gista í eignum niðurgreiddum af stéttarfélögum.
Húsin þurfa að vera í góðu ástandi og með allan útbúnað fyrir 4 til 10 manns. Umsjón þarf að fylgja húsunum en í því felst að afhenda lykla, sinna neyðartilvikum og fara yfir húsinu á milli gesta.
Áhugasamir eru beðnir að senda tölvupóst á netfangið linda@ki.is eða hringja í síma 595 1111 á milli 10 og 15 virka daga.