Vilt þú taka þátt í Menntakviku?

Fréttir|24. maí 2016

Vakin er athygli á því að árleg ráðstefna Menntavísindasviðs HÍ, Menntakvika; rannsóknir, nýbreytni og þróun verður haldin föstudaginn 7. október 2016 við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Þetta er í tuttugasta sinn sem ráðstefnan er haldin. Áhugasömum fræðimönnum og sérfræðingum á sviði menntavísinda og öðrum fræðasviðum sem hafa tengingu við sviðið er boðið að senda inn ágrip fyrir 20. maí 2016. 

 

Skráning fer fram rafrænt og skrá þátttakendur sig til leiks á vefsíðu Menntakviku og velja eina af tveimur leiðum á rafrænu skráningaformi: 

  • Heildstæðar málstofur rannsóknarstofa eða rannsóknarhópa Forsvarsmenn rannsóknarstofa eða -hópa geta sent inn umsókn um heildstæða málstofu með upplýsingum um innihald hennar og þátttakendur, í þar til gert form fyrir 10. júní 2016. Öll ágrip þurfa að innihalda stutta lýsingu á markmiðum rannsóknar eða þróunarverkefnis, aðferðum og helstu niðurstöðum eða lærdóm sem af verkefnum má draga. Senda inn umsókn um heildstæða málstofu
  • Ágrip einstaklinga Áhugasömum fræðimönnum og sérfræðingum á sviði menntavísinda og öðrum fræðasviðum sem hafa tengingu við sviðið, er boðið að senda inn 200 orða ágrip fyrir 20. júní 2016. Ágrip þurfa að innihalda stutta lýsingu á markmiði rannsóknar eða þróunarverkefnis, aðferðum og helstu niðurstöðum eða lærdómi sem af verkefninu má draga. Senda inn ágrip 

Ágripum sem berast eftir auglýsta dagsetningu er sjálfkrafa hafnað. Staðfesting ritstjóra um samþykkt eða höfnun ágrips verður send til höfunda í júní 2016.

Reglur og viðmið

  • Hver og einn getur aðeins verið fyrsti höfundur að einu erindi og meðhöfundur að tveimur. Það þýðir að hver þátttakandi getur aðeins haldið eitt erindi á ráðstefnunni.
  • Undantekning á þeirri reglu er að leiðbeinendur doktorsnema geta tekið þátt með doktorsnemum sem meðhöfundar, auk þess að vera skráðir höfundar tveggja ágripa.
  • Leiðbeinendur skulu vera meðhöfundar erinda/greina sem byggja á meistaraverkefnum.

Útgáfa
Í ár er stefnt að því að gefa út sérrit ráðstefnunnar. Þar af leiðandi eru allir mögulegir flytjendur beðnir um að íhuga þann möguleika með erindin sín. Skilafrestur greina sem birta á í sérriti er 2. ágúst 2016.

Veggspjöld
Einstaklingum og hópum býðst að kynna rannsóknir sínar á veggspjöldum. Gert er ráð fyrir að veggspjöldin séu kynnt gestum ráðstefnunnar í matar- og kaffihléum. Form til að skila inn veggspjöldum verður sent út síðar.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna veita Kristín Harðardóttir (krishar@hi.is) og Sigríður Kr. Hrafnkelsdóttir (sh@hi.is).

Vefsíða Menntakviku

Facebook-síða Menntavísindasviðs