Villandi framsetning sveitarfélaga á launaupplýsingum
Yfirlýsing frá samninganefnd Félags grunnskólakennara:
Í yfirlýsingu frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga við Félag grunnskólakennara er birt línurit sem á að sýna að meðaldagvinnulaun félagsmanna FG hafi hækkað töluvert umfram laun starfsmanna á almennum og opinberum vinnumarkaði frá mars 2013 til mars 2016. Í yfirlýsingunni er þeirri mikilvægu staðreynd sleppt að kostnaðaráhrif kjarasamninganna á þessu tímabili voru mun minni en launahækkanirnar. Flestir kennarar afsöluðu sér t.d. kennsluafslætti (sem leiðir til meiri kennslu), gerðar voru breytingar á viðverutíma kennara, launapottur var færður inn í grunnlaun, aukin vinna færð á uppbrotsdaga og fleira. Allt þetta leiðir til lægri launakostnaðar sveitarfélaganna nú þegar og einnig þegar litið er til lengri tíma. Það má því vera ljóst að framsetning sveitarfélaganna á launaupplýsingum vegna grunnskólakennara í gær var afar villandi.
Félag grunnskólakennara telur annars mjög mikilvægt að samningsaðilar séu ekki að eyða orku og tíma í orðaskak í fjölmiðlum heldur beiti kröftum sínum í að ná ásættanlegri niðurstöðu í þeim kjaraviðræðum sem nú standa yfir undir stjórn sáttasemjara.
f.h. samninganefndar FG,
Ólafur Loftsson