Vilja stofna ný kennarasamtök

Aukaþing Sænska kennarasambandsins, Lärarförbundet, samþykkti á dögunum að vinna að stofnun nýrra heildarsamtaka.
Sænska kennarasambandið (Lärarförbund) efndi til aukaþings í síðustu viku þar sem var samþykkt að vinna að stofnun nýrra heildarsamtaka kennara.
Lärarbund er með hátt í 240 þúsund félagsmenn; kennara, stjórnendur, náms- og starfráðgjafa og kennaranema á öllum skólastigum. Í Svíþjóð er annað félag, Lärarnas Riksförbund, með 92 þúsund félagsmenn. Í hinu síðarnefnda eru einvörðungu kennarar.
Hið nýja kennarasamband mun rúma kennara, stjórnendur, námsráðgjafa og kennaranema á öllum skólastigum, frá leikskóla og upp í háskóla.
Kennarasamböndin tvö hafa átt í viðræðum í hálft annað ár og nú þegar Lärarförbund hefur samþykkt stofnun nýs sambands er þess beðið að hitt félagið komi um borð.
Johanna Jaara Åstrand, formaður Lärarförbund, sagði í ræðu sinni á aukaþinginu að tímbært væri að sameina kennara eftir 32 ára viðskilnað. „Saman munum við vinna að því að draga úr vinnuálagi og hækka launin," sagði hún og bætti við að hún væri stolt af ákvörðun milliþingsins.