Vilja sömu hækkanir og grunnskólakennarar

Fréttir|22. maí 2014

Formaður Félags leikskólakennara, Haraldur Freyr Gíslason, segir leikskólakennara ekki sætta sig við neitt annað en sömu hækkanir og grunnskólakennarar fá samkvæmt nýundirituðum kjarasamningi. Takist samninganefnd sveitarfélaganna ekki að sannfæra samninganefnd FL um að gengið verði til þeirra verka hratt og örugglega verður deilunni vísað til ríkissáttasemjara og undirbúningur aðgerða hafinn. Þetta er meðal þess sem kemur fram í bréfi sem Haraldur Freyr sendi formanni samninganefndar sveitarfélaganna og fulltrúa Reykjavíkurborgar í nefndinni í gær. 

Bréf Haraldar Freys er svohljóðandi: 

Sæl Inga Rún Ólafsdóttir, formaður Samninganefndar sveitarfélaga og Atli Atlason, fulltrúi Reykjarvíkurborgar í Samninganefnd sveitarfélaga.

Innilega til hamingju með nýgerðan kjarasamning við grunnskólakennara.

Samninganefnd Félags leikskólakennara hefur eins ég lofaði ykkur beðið þolinmóð á hliðarlínunni og gefið ykkur rými til að klára þann samning.

Lögum samkvæmt gerðum við viðræðuáætlun 10 vikum áður en kjarasamningur FL og SNS rann út 30. apríl sl. Höfum við haldið með ykkur nokkra samningafundi og við kynnt fyrir ykkur samningsmarkmið okkar og launastöðu félagsmanna FL. Viðræðuáætlun okkar rann út 23. apríl 2014.

Eins og þið vitið munum við ekki sætta okkur við neitt annað en sömu hækkanir og grunnskólakennarar fengu sem og tímasetta áætlun til að leiðrétta og jafna starfskjör eins og undirbúningstíma og fleira.

Ég ætla að vera 100% heiðarlegur við ykkur. Þið munuð fá einn fund til að sannfæra mig um að gengið verði í það verkefni hratt og örugglega. Ef ykkur tekst ekki að sannfæra mig á næsta fundi munum við vísa beint til ríkissáttasemjara og skipuleggja aðgerðir strax.

Það eru engin ný sannindi að ef lítill vilji verður meðal sveitarstjórnarmanna að semja við leikskólakennara um sömu prósentuhækkanir og grunnskólakennara þá tel ég líklegt að reynt verði að haga málum þannig að leikskólakennarar geti ekki farið í þvingandi aðgerðir fyrr en í haust. Það munum við ekki sætta okkur við.

Leikskólakennarar hafa lengi starfað á þann hátt sem sveitarfélögum hugnast svo engin þolinmæði verður að hlusta á rök í þá átt að hækkanir í kjarasamningi FG eigi ekki við um kjarasamning FL. Hugsanlegar kerfisbreytingar í ný undirrituðum kjarasamningi SNS við grunnskólakennara færa hann einfaldlega nær kjarasamningi leikskólakennara.

Þið vitið jafnvel og ég að ef raunverulegur vilji er til að semja við leikskólakennara og félagsmenn FL um sömu hækkanir og grunnskólakennarar sömdu um, er það einföld framkvæmd sem tekur ekki langan tíma. Þið vitið líka að engin rök eru fyrir því að leik- og grunnskólakennarar eigi ekki að vera á sömu launum. Vandinn er alvarlegur þar sem að nú vantar um 1300 leikskólakennara til að uppfylla lög 87/2008 um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda. Ég þarf hins vegar ekkert að minna ykkur á það því þetta kunnið þið alveg upp á tíu.

Ef ekkert heyrist frá ykkur munum við vísa deilunni til ríkissáttasemjara 26. maí n.k.

Það er mín von að þið nýtið ykkar tækifæri vel.

Með vinsemd.

Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara

Afrit af þessum pósti er sent á sveitarstjórnarmenn sem bera hina raunverulegu ábyrgð á kjarasamningi og launaþróun leikskólakennara. Einnig fá fjölmiðlar afrit af þessum pósti.