Vilja fleiri tækifæri til að sinna áhugasviðum sínum

Fréttir|15. desember 2022

Elva Rún Klausen, kennari í Egilsstaðaskóla, segir frá áhugaverðri rannsókn um velfarnað ungmenna.

Heilbrigði og velferð er einn af grunnþáttum menntunar og er það meðal annars hlutverk skóla að rækta félagslegt uppeldi og tilfinningaþroska barna og unglinga. Jákvæð menntun er skilgreind sem menntun sem eykur bæði velferð og námsfærni nemenda. Hún felur í sér að kenna börnum færni til að auka vellíðan og hamingju til viðbótar við að ná árangri í hefðbundnum kennslugreinum. Jákvæð menntun miðar að því að efla velferð allra í skólasamfélaginu,“ segir Elva Rún Klausen grunnskólakennari sem gerði áhugaverða rannsókn í meistaraverkefni sínu við Menntavísindasvið HÍ.

Yfirskrift meistararitgerðarinnar er Lífið er svo miklu meira en skólabókmenntir og byggir á hugmyndum nemenda um eigin velfarnað í skólastarfi. Elva á að baki 24 ára feril sem grunnskólakennari, lengst af sem umsjónarkennari á yngsta stigi en einnig sem myndmenntakennari, velferðarkennari og sérkennari. Elva er kennari við Egilsstaðaskóla.

Máttur hugarfarsins

Elva segir hugmyndina að verkefninu hafa kviknað þegar hún varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að starfa sem velferðarkennari í Egilsstaðaskóla og vinna að verkefninu „Vitund um velferð“ sem fólst í að efla vitund nemenda um eigin hugsanir og mátt hugarfarsins.

„Hugarfar og líðan er undirstaða þess hvernig okkur farnast í lífinu. Ég nýtti nálgun jákvæðrar sálfræði við velferðarkennsluna með það að markmiði að efla sjálfsþekkingu og sjálfstiltrú nemenda þar sem tilfinningar, styrkleikar, hugarfar og núvitund voru áhersluþættir.“

Elva segir markmið rannsóknarinnar hafa verið að skoða hvaða hugmyndir ungmenni hefðu um þá þætti sem stuðla að velfarnaði þeirra í skólastarfi og hvaða þætti velfarnaðar þeim fyndist að skólakerfið ætti að leggja enn meiri rækt við en það gerir nú.

„Ég notaði meðal annars kenniramma sem kallast EPOCH og var notaður af Kern og félögum, en þau tóku saman þá fimm þætti sem þau töldu mikilvæga börnum og ungmennum þannig að þau upplifðu velfarnað. Þessir fimm þættir eru áhugi og innlifun, þrautseigja, bjartsýni, félagsleg tengsl og hamingja. Ég skoðaði hvernig þessir þættir og aðrir birtast í hugmyndum ungmennanna en ég tók sex hálfopin vinahópaviðtöl við samtals 19 nemendur í áttunda, níunda og tíunda bekk,“ segir Elva.

Elva víkur talinu að EPOCH- rammanum sem hún segir gagnlegan þegar komi að því að ná utan um mikilvæga þætti velfarnaðar ungmenna. „Það kom í ljós þegar rannsóknargögnin voru þemagreind að allir þættir EPOCH birtust í svörum viðmælenda. En þótt kenniramminn sé gagnlegur þá nær hann ekki fyllilega utan um alla þætti velfarnaðar í minni rannsókn. Þannig birtist þáttur til viðbótar sem varðar að finna merkingu og tilgang. Þá birtust ýmsir þættir lífsfærni sem nemendurnir töldu að skólakerfið þyrfti að leggja meiri rækt við en nú er gert – þar sem slík færni myndi auka velfarnað,“ segir Elva.

Áhugi, innlifun og félagsleg tengsl voru þeir þættir sem voru mest áberandi, að sögn Elvu, en það styður niðurstöður rannsókna Kern og félaga um mikilvægi þess að fást við viðfangsefni af innri áhugahvöt og að mæta þörfinni fyrir að tilheyra.

„Í skólastarfi er mikilvægt að hlúa vel að öllum þessum þáttum. Jákvæð menntun sem snýr að því að byggja upp persónuþroska og þar með velfarnað nemenda ásamt því að efla námsárangur er nokkuð sem skólar geta litið til og komið þannig til móts við grunnþátt Aðalnámskrár um heilbrigði og velferð,“ segir Elva.

Frumkvæði og sjálfræði

Spurð um það helsta sem nemendur lögðu til í rannsóknarviðtölunum segir Elva að stuðningur við sjálfræði og hæfni hafi skorað mjög hátt. „Þau óska eftir að fá fleiri tækifæri í skólanum til að vinna að áhugasviðsverkefnum – og vilja að það sé mögulegt jafnt og þétt yfir skólaárið. Fram kom líka að þau telja að þær aðstæður í skólastarfi sem veita þeim möguleika til að taka frumkvæði og upplifa sjálfræði innan ákveðins ramma, fá skýr markmið með viðfangsefnum og fá tækifæri til að nýta styrkleika sína séu best til þess fallin að efla áhuga á námi.“

Hugarfar og ­líðan er undirstaða þess hvernig okkur ­farnast í lífinu.

Elva segir nokkuð áberandi að sú upplifun að nemendur finni tilgang með viðfangsefnum sínum sé mikilvægur þáttur og því sé, að hennar mati, mikilvægt að útskýra gildi og þýðingu verkefna fyrir nemendum. Með því móti skilji nemendur frekar hvers vegna þeir ættu að leggja sig fram við verkefni sín.

Efling velferðar- og lífsleiknikennslu var nemendunum einnig hugleikin auk þess sem þau lögðu til að fleiri kynningar væru í boði innan skólans. „Þar eiga þau við að fá kynningar frá samtökum, atvinnulífinu og fleiru í þeim dúr. Þetta, ásamt velferðarkennslu og lífsleikni, telja þau mikilvægt til að undirbúa sig fyrir lífið og tilveruna og allar þær áskoranir sem bíða þeirra,“ segir Elva.

Skýr markmið skipta máli

Elva er því næst spurð hvort eitthvað hafi komið á óvart þegar hún rýndi í niðurstöður rannsóknarinnar. „Það sem kom mér mest á óvart var hversu áberandi sálrænu grunnþarfirnar þrjár, sjálfræði, hæfni og félagsleg tengsl, birtust eins og rauður þráður í gegnum öll viðtölin. Þegar stutt er við þessar grunnþarfir aukast líkurnar á að innri áhugahvöt einstaklinga eflist.“

En hvað telur Elva að sé hægt að læra af verkefninu og færa til betri vegar í skólakerfinu? „Allir þættirnir sem koma fram skipta ungmennin máli til að líða vel í skólanum. Til að ungmenni upplifi þá tilfinningu að langa að læra meira þá skiptir innri áhugahvöt gríðarlega miklu máli í öllu námi og einnig tilfinningin að tilheyra. Framkoma kennara skiptir líka miklu máli, að sýna nemendum áhuga og umhyggju. Væntingar kennara í garð nemenda geta skipt sköpum varðandi þrautseigju og metnað. Einnig að hafa skýr markmið með öllum verkefnum því þá upplifa nemendur frekar tilgang með þeim,“ segir Elva.

Hún segir að mögulega þurfi að forgangsraða betur því sem skiptir máli að nemendur tileinki sér. „Samkvæmt þessari rannsókn vilja nemendur fá fleiri tækifæri til að efla sjálfsþekkingu og persónulega færni sína á ýmsum sviðum meðal annars í samskiptum, skipulagshæfni og að taka betur ábyrgð. Þetta eru allt þættir sem gera ungmennin að sterkari manneskjum og eru afar mikilvægir í lífinu. Til eru einfaldar leiðir til að efla líðan og styrk nemenda og ekki endilega þörf á því að kollvarpa skólakerfinu til að sá mikilvægum fræjum,“ segir Elva Rún Klausen.

 

Viðtalið við Elvu birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2022.

 

Það sem kom mér mest á óvart var hversu áberandi sálrænu grunnþarfirnar þrjár, sjálfræði, hæfni og félagsleg tengsl, birtust eins og rauður þráður í gegnum öll viðtölin.