Vilja auka karlmennsku í hópi leikskólakennara

Fréttir|1. nóvember 2016

Stofnfundur faggreinafélagsins SKÁL fór fram í Kennarahúsinu í dag en markmið félagsins er meðal annars að auka karlmennsku í hópi leikskólakennara og jafna kynjahlutfallið í hópi starfsmanna í leikskólum. Í stjórn voru kosnir Sverrir J. Dalsgaard, Hörður Svavarsson og Egill Óskarsson, sem jafnframt er formaður félagsins.

Í samþykktum SKÁL segir meðal annars að félagsaðild geta þeir fengið sem telja sig vera karlmenn og hafa starfsréttindi leikskólakennara. Einnig að verði félaginu slitið renni eignir þess til skemmtanasjóðs kjarasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga.