Vikupóstur FF hefur göngu sína á nýjan leik

Fréttir|19. ágúst 2014

Sverrir Árnason, íslenskukennari við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ, skrifar fyrsta Vikupóst FF eftir sumarfrí. Sverrir segir frá því hvernig hann nýtti styrk úr Sprotasjóði til þess að útbúa kennsluefni í íslensku á framhaldsskólastigi út frá áherslum nýrrar aðalnámskrár.

„Eitt er verkefnabanki úr Brennu–Njáls sögu þar sem mesta áherslan er lögð á sköpun en einnig er unnið með lýðræði og mannréttindi og jafnrétti. Annað er verkefnabanki úr Bók af bók eftir Silju Aðalsteinsdóttur og er megináherslan á lykilhæfnina námshæfni. Í þriðja verkefninu er unnið með lykilhæfnina jafnrétti þar sem ljóð og textabrot frá upphafi 20. aldar eru nýtt til þess að auka skilning nemenda á hugtakinu jafnrétti," skrifar Sverrir meðal annars í Vikupóstinum.