Viðurkenningar á Menntastefnumóti

Listrænt ákall til náttúrunnar, Það þarf þorp..., Plánetur og geimskutlur; vaxtarsproti samþættingar í kennslu og fleiri verkefni voru verðlaunuð.
Á Menntastefnumóti Reykjavíkur voru veitt verðlaun fyrir fyrirmyndarstarfsstaði og hvatningarverðlaun. Tólf starfsstaðir skóla- og frístundasviðs fengu viðurkenningu sem fyrirmyndarstarfsstaðir og átta staðir fengu hvatningarverðlaunin. Mikil gróska er í skólastarfi í Reykjavík og ánægjulegt þegar vakin er athygli á vel unnu verki.
Horft var til fjögurra þátta í viðhorfskönnun starfsmanna; árangursríkra stjórnunarhátta, starfsánægju, hæfni og áhugasemi starfsmanna, og jákvæðs starfsumhverfis. Út frá niðurstöðum eru fyrirmyndarstarfsstaðir 2021:
Í flokki leikskóla:
Stakkaborg
Brákarborg
Lyngheimar
Hálsaskógur
Í flokki grunnskóla:
Álftamýrarskóli
Réttarholtsskóli
Engjaskóli
Í flokki frístundaheimila:
Álftabær, frístundamiðstöðinni Kringlumýri
Skýjaborgir, frístundamiðstöðinni Tjörninni
Undraland, frístundamiðstöðinni Tjörninni
Í flokki félagsmiðstöðva:
Hundraðogellefu, frístundamiðstöðinni Miðbergi
Holtið, frístundamiðstöðinni Árseli
105, frístundamiðstöðinni Tjörninni
Þá hlutu átta nýbreytni- og þróunarverkefni hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs. Auk þess fengu fjögur samstarfsverkefni sérstaka viðurkenningu.
• Leikskólinn Kvistaborg fær hvatningarverðlaun fyrir Listrænt ákall til náttúrunnar – LÁN. Markmið verkefnisins er að börnin starfi með ólíka listmiðla og listamönnum og tengist náttúrunni í gegnum listsköpun sína.
• Leikskólinn Borg fær hvatningarverðlaun fyrir verkefnið Það þarf þorp… en skólinn heftur haft frumkvæði að þessu samstarfsverkefni í Bakkahverfinu í Breiðholti. Verkefnið miðar að því að breyta vinnubrögðum, kennslu og samstarfi alls skóla- og frístundastarfs í hverfinu með það að markmiði að breyta ímynd hverfisins og mæta betur þörfum allra barna.
• Austurbæjarskóli fær hvatningarverðlaun fyrir verkefnið Plánetur og geimskutlur; vaxtarsproti samþættingar í kennslu sem unnið var í 3. bekk og felst í því að tengja félagsfærni, leiðsagnarnám og vaxtarhugarfar og samþætta nám í fleiri námsgreinum um himingeiminn.
• Árbæjarskóli fær hvatningarverðlaun fyrir verkefnið Á toppinn sem er valgrein á unglingastigi þar sem nemendur fara með kennurum í fjallgöngur. Á göngunni takast nemendur á við ýmsar hindranir og áskoranir og þurfa að horfast í augu við eigin viðhorf og hugarfar. Fjallið er lífið sjálft og ferðalagið nám í lífsleikni.
• Háteigsskóli fær hvatningarverðlaun fyrir verkefnið Sjálfsþekking í þágu náms þar sem unnið er með markþjálfun á unglingastigi. Markmiðið er að styðja við nemandann svo að hann læri að taka ábyrgar og upplýstar ákvarðanir í eigin lífi.
• Frístundaheimilið Selið fær hvatningarverðlaun fyrir verkefnið Stafræn frístund sem hverfist um 21. aldar foreldrasamskipti. Unnið hefur verið markvisst og á framsækin hátt með hlaðvarp, kvikmyndagerð og ljósmyndun.
• Félagsmiðstöðin Hólmasel fær hvatningarverðlaun fyrir kynfræðslu í Seljahverfi sem hefur síðastliðin þrjú ár farið fram sem tilraunaverkefni undir handleiðslu Jafnréttisskóla Reykjavíkur.
• Frístundaheimilið Eldflaugin fær hvatningarverðlaun fyrir verkefnið Stúdíó Eldflaugin.
Börnin hafa tekið þátt í metnaðarfullri kvikmyndaframleiðslu sem náði hámarki með frumsýningu í Bíó Paradís.
Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir fjögur samstarfsverkefni:
• Það þarf þorp - samstarfsverkefni allra stofnana sem vinna með börnum og ungmennum í Bakkahverfi; leikskólana Borgar og Bakkaborgar, Breiðholtsskóla, frístundaheimilisins Bakkasels og félagsmiðstöðvarinnar Bakkans.
• Austur-Vestur - samstarfsverkefni Ingunnarskóla, Selásskóla og Vesturbæjarskóla.
• Flotinn, flakkandi félagsmiðstöð - samstarfsverkefni frístundamiðstöðvanna Ársels, Gufunesbæjar, Miðbergs, Kringlumýri og Tjarnarinnar.
• Kjólar og kynusli sem unnið var á frístundaheimilinu Simbað sæfara undir umsjón Bryngeirs Bryngeirssonar.
Frétt um fyrirmyndarstarfsstaði