Viðræðunefnd KÍ samþykkir innanhússtillögu

Fréttir|20. febrúar 2025

Samninganefndir ríkis og sveitarfélaganna hafa frest til tíu í kvöld til að samþykkja eða hafna tillögu ríkissáttasemjara. Kennarasambandið hefur fyrir sitt leyti samþykkt tillöguna.

Viðræðunefnd KÍ samþykkti rétt í þessu innanhússtillögu ríkissáttasemjara. Samninganefndir sveitarfélaga og ríkis hafa frest til klukkan tíu í kvöld að samþykkja tillöguna eða hafna fyrir sitt leyti.

Verði tillagan samþykkt af öllum aðilum verður yfirstandandi verkfalli í Leikskóla Snæfellsbæjar aflýst og boðuðum verkföllum aðildarfélaga KÍ, sem hefjast eiga á miðnætti, verður einnig aflýst.

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, segir að verði innnhússtillagan að veruleika þá sé ráðgert að formleg undirritun kjarasamninga fari fram á morgun.

Það eru formenn aðildarfélaganna sjö, auk Magnúsar, sem hafa undirritað samþykki fyrir tillögunni. Þetta eru Félag leikskólakennara (FL), Félag grunnskólakennara (FG), Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT), Félag stjórnenda leikskóla (FSL) og Skólastjórafélag Íslands (SÍ) en þau semja við Samband íslenskra sveitarfélaga og Félag framhaldsskólakennara (FF) og Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS) sem semja við ríkið.

Greint verður frá svörum samninganefnda ríkis og sveitarfélaga um leið og þau liggja fyrir.