Viðræðuáætlun FL og Sambandsins liggur fyrir
Fréttir|19. október 2021

Viðræður um nýjan kjarasamning hefjast í byrjun næsta mánaðar.
Samkomulag um viðræðuáætlun Kennarasambands Íslands, vegna Félags leikskólakennara, og Sambands íslenskra sveitarfélaga, liggur fyrir. Gengið var frá samkomulaginu 14. þessa mánaðar.
Í áætluninni segir að upphaf samningaviðræðna verði í byrjun nóvember en þá komi aðilar saman, kynni skipan samninganefnda og leggi fram helstu markmið og áherslur í komandi kjarasamningum.
Gildistími núgildandi samnings er til 31. desember næstkomandi. Skrifað var undir samninginn í júlí 2020.