Viðhorf til starfsaðstæðna og starfshátta

Fréttir|22. janúar 2015

Viðhorf kennara og skólastjórnenda til starfsaðstæðna og starfshátta

OECD hefur tvívegis staðið fyrir alþjóðlegri rannsókn á viðhorfum kennara og skólastjórnenda til starfsaðstæðna sinna og starfshátta sem nefnist TALIS (Teaching and Learning International Survey). Fyrsta rannsókn af þessu tagi var lögð árið 2008 fyrir kennara og skólastjórnendur á unglingastigi grunnskóla í 24 löndum, og einnig hér á landi. Árið 2013 náði rannsóknin til 34 landa með áherslu á unglingastigið, og þá líka boðið upp á að leggja hana fyrir á yngsta og miðstigi grunnskóla og í framhaldsskólum. Hér tók rannsóknin til unglingastigs grunnskóla og framhaldsskóla.

Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands skrifar

Niðurstöðurnar 2013 komu út í tveimur hlutum á síðasta ári, unglingastigið í júní og framhaldsskólastigið í desember. Námsmatsstofnun sá um framkvæmd hér á landi 2008 og 2013. Á heimasíðu stofnunarinnar namsmat.is undir flipanum „Rannsóknir“ eru skýrslur um niðurstöðurnar á unglingastiginu hér á landi og heildarskýrslur á vef OECD.

TALIS er eina alþjóðlega rannsóknin sem fjallar um starfsaðstæður kennara og skólastjórnenda og námsumhverfi í skólum. Markmiðið er að safna áreiðanlegum og samanburðarhæfum gögnum sem geta nýst við að meta og móta stefnu um starfsþróun kennarastéttarinnar. Mikilvægt er að byggja á greinargóðum upplýsingum frá fyrstu hendi um starfsaðstæður og starfshætti í skólunum þegar það er gert. 

Í TALIS eru kennarar og skólastjórnendur spurðir um viðhorf þeirra til eftirfarandi þátta.

 - Menntunar, þjálfunar og starfsþróunar.
 - Mats og endurgjafar til kennara.
 - Stjórnunar og stefnumótunar í skólanum.
 - Kennslufræði og kennsluhátta.
 - Sjálfræðis kennara í starfi, starfsánægju og skólabrags.

Ýmsa fyrirvara þarf að hafa þegar niðurstöður eru túlkaðar. Í fyrsta lagi eru svör kennara og skólastjórnenda huglæg, þau lýsa skoðunum, aðstæðum og störfum þeirra. Því er vel mögulegt að einhvers misræmis gæti á milli þess sem TALIS gefur til kynna og annarra tegunda upplýsinga um skólakerfið. Í öðru lagi er rannsóknin ekki þess eðlis að hún geti mælt orsakasamhengi, gefið skýra mynd af orsök og afleiðingu. Í þriðja lagi getur TALIS ekki mælt með beinum hætti markvirkni kennslu. Af þessum ástæðum eru könnuð ofangreind þemu en þau eru ofarlega á blaði í mörgum löndum í menntamálum en þar að auki hafa margar rannsóknir sýnt að þessi þemu eru nátengd gæðakennslu. Og í fjórða lagi þarf að taka tillit til menningarlegs mismunar í túlkun á einstökum spurningum.

Það er staðreynd að í fjölmörgum löndum blasir við alvarlegur kennaraskortur áður en langir tímar líða fram því fjölmennir hópar kennara eru að nálgast eftirlaunaaldur, og er Ísland hér engin undantekning. Af þessum ástæðum er það orðið forgangsverkefni víða um heim að auka nýliðun í kennarastéttinni, ýta undir meiri aðsókn í kennaranám, styrkja menntun og þjálfun kennaraefna og að gera kennarastarfið eftirsóknarvert; laun og starfsskilyrði og fjölbreyttar leiðir til starfsþróunar og framgangs í starfi.

En það er fleira sem er hér að verki. Almennt er það orðið viðurkennt að kennarar eru einstaki mikilvægasti áhrifaþátturinn í skólastarfinu fyrir nám nemenda og kennslutengd atriði. Það skýrir þennan vaxandi áhuga á að safna þekkingu um kennarastéttina í þeim tilgangi að efla kennslu og nám nemenda. TALIS er að þessu leyti mikilvægt skref að því að beina sérstakri athygli að starfsaðstæðum kennara í kennslu, mikilvægasta hluta kennarastarfsins.

Mikilvægi starfsþróunar

Í niðurstöðum TALIS er að finna margar tillögur um meiri stuðning við kennara og skólastjórnendur af margvíslegu tagi til að gera þeim betur kleift að einbeita sér að mikilvægasta þætti skólastarfsins, kennslu og námi nemenda. 

Fram kemur að undirbúa þurfi skólastjórnendur betur til að takast á hendur að stýra skóla. Auka þurfi möguleika þeirra til starfsþróunar og bæta aðgengi að starfsþróun. Einnig þurfi að tryggja skólastjórnendum starfsþjálfun og skapa þeim aðstæður til að vera faglegir leiðtogar í skólastarfinu.

Hvað varðar stuðning við kennara þá er lagt til að skólar bjóði nýjum kennurum upp á nýliðaþjálfun og að þeir séu hvattir til þátttöku, og að skólar komi á skipulegri leiðsögn og stuðning við kennara og styðji við þátttöku þeirra í slíku alla starfsævina. Einnig þurfi að tryggja framboð og þátttöku kennara í starfsþróun og auka aðgengi þeirra að starfsþróun.

Í TALIS er fjallað um atriði sem hafa mikil áhrif á þátttöku kennara í starfsþróun en þau eru meðal annars tími, sveigjanleiki í starfi, að framboð af starfsþróunarverkefnum sé í samræmi við þarfir kennara og hvati til starfsþróunar sé fyrir hendi.

Í TALIS eru tillögur sem varða sjálfræði kennara í starfi og starfsánægju. Þar er meðal annars lagt til að að efla kennara til þátttöku í ákvörðunum í skólunum, að bjóða þeim upp á starfsþróunarverkefni í bekkjarstjórnun, stuðning í kennslu og kennsluráðgjöf til að ráða betur við hegðunarvanda hjá nemendum og að hvetja kennara til að vinna saman að starfsþróun og kennsluháttum.

Niðurstöðurnar í TALIS um sjálfræði kennara í starfi og starfsánægju varpa ljósi á mikilvægi þess að raddir kennara heyrist. Samstarf er lykillinn að gæðamenntun en ekki valdboð að ofan.

Þarfir kennara og skólastjórnenda kannaðar

Ein alvarlegasta niðurstaðan í TALIS er að minna en þriðjungur kennara telur að kennarastarfið sé mikils metið í samfélaginu. En þar kemur líka fram að ef kennarar upplifa að þeir hafi stjórn á starfi sínu utan skóla og innan og ef starfsánægja þeirra er mikil og sjálfræði í starfi, þá eykst trú þeirra á að kennarastarfið sé mikils metið.

Þetta hefur mikla þýðingu fyrir stefnumótun í menntamálum og starf kennarasamtaka. Kennarastétt með sterka faglega sjálfsmynd sem metin er að verðleikum er besta aðferðin við að auka nýliðun í kennslu. Þetta eru sennilega mikilvægustu skilaboðin í TALIS.

Starfandi er fagráð um starfsþróun kennara og skólastjóra með þátttöku KÍ, menntamálaráðuneytis, sveitarfélaga og háskóla sem mennta kennara. Hlutverk fagráðsins er að móta stefnu um starfsþróun stéttarinnar og er vinna að þessu hafin með upplýsingasöfnun af ýmsu tagi. Á næstunni ætlar fagráðið meðal annars að einbeita sér að því að fara yfir TALIS niðurstöðurnar og kanna þarfir kennara og skólastjóra fyrir símenntun og starfsþróun. Fagráðinu er ætlað að leggja fram tillögur í byrjun næsta árs. KÍ leggur mikla áherslu á að þær feli í sér skýrar skuldbindingar um að styrkja starfsaðstæður kennarastéttarinnar og skólastarfið, aðferðir og fjármuni til þessa.  

Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands. 

 

Þessi grein birtist í Skólavörðunni, tímariti Kennarasambands Íslands. Lestu blaðið í heild:

Skólavarðan á Apple-Store

Skólavarðan á Google Play

Skólavarðan á netinu