Viðburðir faggreinafélaga hafa breyst með COVID-19

Fréttir|7. apríl 2021

Formenn fjögurra faggreinafélaga segja frá helstu áhrif kórónaveirunnar á starfsemi sinna félaga en horfa um leið til framtíðar.

Pallborð Skólavörðunnar, sem kom nýverið út í prentútgáfu, er skipað fjórum formönnum faggreinafélaga. Þau eru Birgir U. Ásgeirsson, formaður Félags raunagreinakennara, Hólmfríður Sigþórsdóttir, formaður Samlífs, samtaka líffræðikennara, Fjóla Þorvaldsdóttir, formaður Faghóps um skapandi skólastarf, og Hugrún R. Hólmgeirsdóttir, formaður Samtaka móðurmálskennara.

Venju samkvæmt eru lagðar þrjár spurningar fyrir pallborðið. 

Hvernig gengur að ná til kennara fyrir hönd þíns félags?

Birgir: Við erum ánægð. Þátttaka í viðburðum er mismikil og margt sem hefur áhrif hverju sinni. Þrátt fyrir það er mikilvægt að stuðla að framboði á endurmenntun annars vegar og skapa vettvang fyrir samskipti meðal kennara hins vegar. Meðan kennarar halda áfram að láta sjá sig getum við vel við unað.

Hólmfríður: Fjöldi félagsfólks og virkni er sögð vera með því besta en tengingu við nýútskrifaða kennara á öllum skólastigum er ábótavant. Til fyrirmyndar væri ef skólastjórnendur kæmu á sambandi við faggreinafélög þar sem virkni í fagfélögum er liður í símenntun sem styrkir fagvitund.

Stjórn Samlífs hefur áhyggjur af hversu fáir kennarar útskrifast af sviði náttúruvísinda. Styrkja þarf starfandi náttúrufræðikennara í grunnskólum og bæta starfsskilyrði þeirra og samvinnu þeirra á milli. 

Fjóla: Það hefur gengið vel að ná til félagsmanna, og við vorum svo heppin að það var hægt að halda upp á 20 ára afmæli Faghópsins og aðalfund í júní 2020. Við það tilefni hélt Bergrún Íris Sævarsdóttir barnabókahöfundur og teiknari frábært erindi. Við opnuðum líka nýja og fallega heimasíðu. Haustið 2020 höfum við svo verið með frábæra netviðburði. Við höfum haldið okkar striki með fréttabréfið okkar, það kom út í nóvember að vanda. Við verðum svo með netviðburði í hverjum mánuði núna á vorönn 2021.

Hugrún: Samtök móðurmálskennara halda úti Facebook-síðu þar sem stjórn og aðrir félagar koma á framfæri alls kyns upplýsingum en lengi hefur Skíma verið málgagn okkar félaga. Því miður hætti mennta- og menningarmálaráðuneyti stuðningi við útgáfu hennar árið 2017. Ýmislegt er þó í farvatninu til að ná betur til okkar fólks og vonandi náum við þá einnig til nýrra félaga sem við bjóðum ávallt velkomna!

Hver eru helstu áhrif COVID-19 á starfsemi félagsins og fagið?

Birgir: Hætta þurfti við viðburði. Faraldurinn var þó í lægð sl. sumar og því var unnt að halda árleg sumarnámskeið. Störf sem snúa að þróun náms og kennslu verða ekki fyrir áhrifum. Hvað varðar félagslega þáttinn þá horfir öðruvísi við. Í sumum skólum eru raungreinakennarar fámennir og því skortur á faglegu samtali. Það hefur gengið verr á tímum samkomutakmarkana að skapa þann vettvang þvert á skóla.

Hólmfríður: Einu áhrif á starfsemi félagsins eru að ákveðnir viðburðir eru rafrænir. Félagsfólk Samlífs er á öllum skólastigum svo áhrifin eru breytileg. Fyrir framhalds- og háskóla var verst að missa verklegar æfingar. Sýni- og heimatilraunir geta aldrei komið í staðinn fyrir verklegar æfingar sem eru mikilvægar til að dýpka þekkingu á viðfangsefnum líffræðinnar. Nemendur brugðust við með mikilli aðlögunarhæfni og menntun er því sambærileg og í eðlilegu árferði.

Fjóla: Helstu áhrif eru þau að við getum ekki viðhaldið viðburðunum Skapandi leikskólastarf úti í leikskólum, en Faghópurinn hefur verið með slíka viðburði mánaðarlega í mörg ár. Í staðinn höfum við fengið frábært fólk til að halda afar áhugaverða fyrirlestra á netinu sem hafa verið ótrúlega vel sóttir.

Almennt er leikskólafólk afar hugmyndaríkt og lætur COVID-19 hafa sem minnst áhrif á listalíf skólans. 

Hugrún: Starfsemi SM hefur nánast legið niðri undanfarna mánuði, því miður. Við náðum að halda okkar árlega sumarnámskeið, styrkt af SEF, sem eðli málsins samkvæmt er einkum ætlað framhaldsskólakennurum. Aðrar samkomur á vegum samtakanna eru þvert á skólastig og þær hafa legið niðri sem er bagalegt! COVID-19 bitnar verst á þeim þætti í móðurmálskennslu sem felst í samskiptum, bæði milli nemenda og kennara og ekki síður í samtali nemenda. Tengingin rofnar óneitanlega þegar kennsla fer fram í rafrænu umhverfi.

Hvernig sérðu starfsemin fyrir þér á árinu 2021?

Birgir: Viðburðir á fyrri hluta árs falla niður eða færast á rafrænt form. Tvíæringurinn Ráðstefna um náttúrufræðimenntun í mars verður t.a.m. rafræn (malthing.natturutorg.is). Það er áskorun. Undirbúningur árlegra sumarnámskeiða er með hefðbundnu sniði. Við stefnum að námskeiðum um veðurfræði og nýjungar í jarðrækt og jarðvegstilraunum. Tíminn verður svo að leiða í ljós hvernig málin þróast. Við horfum þó bjartsýn fram á veginn.

Hólmfríður: Meginmarkmiðið er að styrkja kennslu í líffræði á öllum skólastigum. Félagið fagnaði fjölgun kennslustunda á unglingastigi og ítrekað hefur verið óskað eftir fundi með menntamálaráðherra um stöðu náttúrufræðimenntunar. Starfsemin verður að mestu með hefðbundnum hætti. Helstu viðburðir eru fræðsluerindi á aðalfundi, þriggja daga endurmenntunarnámskeið, samlífssveppamór, þátttaka í málþingi um náttúrufræðimenntun og Líffræðiráðstefnunni. 

Fjóla: Starfið verður gróskumikið á komandi vori. Við verðum með netviðburði í hverjum mánuði og fréttabréfið okkar mun koma út í mars að venju. Í mars fáum við líka umræðu um heimspeki með leikskólabörnum, þar sem þau Helga María Þórarinsdóttir og Ingi Jóhann Friðjónsson segja okkur frá heimspekistarfinu í leikskólanum Lundarseli. Það verður einnig fyrirlestur um skapandi efni og notkun þess í leikskólastarfi. Það eru bjartir tímar fram undan hjá Faghópnum. 

Starfið verður gróskumikið á komandi vori. Við verðum með netviðburði í hverjum mánuði og fréttabréfið okkar mun koma út í mars að venju. Í mars fáum við líka umræðu um heimspeki með leikskólabörnum, þar sem þau Helga María Þórarinsdóttir og Ingi Jóhann Friðjónsson segja okkur frá heimspekistarfinu í leikskólanum Lundarseli. Það verður einnig fyrirlestur um skapandi efni og notkun þess í leikskólastarfi. Það eru bjartir tímar fram undan hjá Faghópnum.

Hugrún: Við vinnum nú að því að koma Skímu í loftið og vonum að okkur takist þá að ná til fleiri félaga og dýpka faglegt samtal um móðurmálskennslu á landinu öllu. Það er óhætt að segja að rödd okkar félagsmanna er mikilvæg í umræðum við menntamálayfirvöld og því þurfum við að geta rætt saman á vettvangi sem við stýrum sjálf til að auka samstöðu og efla okkur sjálf í starfi. Vonandi getum við svo einhvern tímann haldið gott partí.

 

Pallborðið birtist í Skólavörðunni, 1. tbl. 2021.