Viðburðaríkt ár framundan

Fréttir|22. desember 2025

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ gerir upp árið í hátíðarpistli og boðar viðburðaríkt nýtt ár.

Kæru kollegar.

Þá siglum við inn í síðustu daga ársins 2025. Árs sem var svo sannarlega viðburðaríkt í starfi Kennarasambands Íslands – á alls konar vettvöngum.

Öflug kjarabarátta

Fyrst ber auðvitað að nefna kjarabaráttuna sem stal öllum fyrirsögnum fyrstu þrjá mánuði ársins. Vissulega hófst sú barátta á árinu 2024 en eftir alls konar tilfæringar í umgjörð samninganna, kannski einna helst alþingiskosningar og nýja ríkisstjórn, voru þeir leiddir til lykta í febrúarmánuði eftir samningalotu sem aldrei verður sagt annað um en að hafi verið hörð.

Niðurstaðan var að fyrsta skref var tekið í átt að loforði frá árinu 2016 um jöfnun launa milli kennara og sambærilegra sérfræðinga á opinberum markaði. Barátta sem við hjá KÍ höfum haft í forgrunni síðustu ár og er mikilvægur áfangi á leið okkar allra til jöfnuðar. Við myndgerðum leiðina að jöfnuði, töldum að á kortinu væru laun félagsfólks KÍ úti í Eldey og fyrirheitna landið væri Siglufjörður. Þetta skref metum við hafa komið okkur vel í gegnum Hvalfjarðargöngin – klárlega farin af stað en töluverður spölur er eftir. Spölur sem að hluta til var lagður inn í verkefni um virðismat á störfum félagsfólks KÍ, verkefni sem hófst strax í mars á þessu ári og hefur verið rauði þráðurinn í störfum allra aðildarfélaga nú í gegnum árið.

Samstaðan stendur upp úr

Þegar ég horfi nú í baksýnisspegilinn er það skýrt í mínum huga hversu mikilvægt það var að við færum öll saman í gegnum þann skafl sem jöfnun launa milli markaða er. Staða aðildarfélaga KÍ er að mörgu leyti ólík, sérstaklega þegar horft er til ólíkra launagreiðenda í formi ríkis (framhaldsskólinn) og sambands íslenskra sveitarfélaga (leik-, grunn- og tónlistarskólar). Það var þó samstaða alls félagsfólks sem varð þess valdandi að þessir samningar náðust með þessum hætti. Samningar sem rufu glerþakið „merki markaðarins“ og náðu að leiðrétta kaupmátt okkar fólks, sem hafði sannarlega ekki verið á pari við annað launafólk á Íslandi, urðu vegna þess að við lögðum til hliðar flest það sem er ólíkt á milli okkar hópa og stefndum að sama marki.

Ég fullyrði að ekkert aðildarfélaga KÍ hefði náð þessum árangri eitt og sér, hann réðst auðvitað af margra mánaða veru í húsnæði Ríkissáttasemjara og af upplifun þeirra funda allra. Þar spilaði langsterkast inn í alger samstaða félagsfólks KÍ úti í skólunum, hvort sem við horfum til yfirgnæfandi samþykkis þeirra verkfalla sem boðuð voru eða gríðarlegrar þátttöku í viðburðum tengdum kjarabaráttunni. Ég get bara ekki lýst því hversu sterkt það var að koma til funda með félagsfólki og heyra raddir ólíkra skólagerða sem hvöttu hvert annað áfram. Það mun lifa lengi.

Virðismatsvegferð á góðri leið

Baráttan er þó hvergi nærri búin. Þetta var, eins og ég hef áður sagt, fyrsta skrefið. Við í stjórn KÍ höfum haldið okkur við þær áherslur sem lagðar voru í kjarabaráttunni síðasta vetur og erum mjög samstíga í viðræðum við opinbera launagreiðendur.

Það samtal er sannarlega ekki einfalt en við greinum þó ákveðna möguleika á auknum skilningi á okkar stöðu í vinnu um virðismatið sem leidd er af Jafnlaunastofu. Þar hefur myndast ákveðið traust í samtalinu sem við horfum jákvæðum augum á til framtíðar. Við erum enn jafn ákveðin og áður að fara saman veginn í sæluríkið Siglufjörð og jafn sannfærð um að samstaðan skili okkur lengst á þeirri leið.

Kennarasambandið og stjórnmálin

Við höfum ekki farið varhluta af stjórnmálunum á árinu 2025. Alþingiskosningar og ný ríkisstjórn kallar alltaf á nýja byrjun, í okkar tilviki höfum við hitt tvo menntamálaráðherra á þessu almanaksári, sem er frekar óvanalegt. Undanfarin ár hefur mikil umræða farið fram við rekstraraðila skólanna okkar, við íslenska ríkið um framhaldsskólana og sveitarfélögin um leik-, grunn- og tónlistarskólana. Það er ekkert algilt að félagsfólk KÍ sé með í þeim viðræðum, við þekkjum dæmi úr sögunni þar sem stjórnmálaöfl völdu sér að sækja ekki í samtal við fólkið „á gólfinu“ heldur horfa til annarra þátta sem lykla að gæðum skólastarfs, sem mér finnst auðvitað galin hugmyndafræði.

Við hjá KÍ höfum verið hluti af samtalinu undanfarin ár, vissulega til að hlusta en þó enn frekar til að eiga rödd við borðið um ólíka þætti. Við erum sannarlega ekki alltaf sammála þeirri aðferðarfræði eða aðgerðum sem horft er til en höfum metið það sem svo að okkar rödd verði alltaf til góðs. Væntingar um að mótun framtíðarinnar sé best borgið í slíku samtali hafa leitt okkur áfram á þeirri leið.

Við höfum nú síðustu vikur kallað eftir samvinnu í formi ímyndarvinnu um mikilvægi skólastarfs fyrir öflugri framtíð og munum halda því áfram á næsta ári. Við vonum sannarlega að umræða um skólamál verði í jákvæðu hjólförunum og með það að markmiði að gera góða skóla enn betri. Þar er mesti ávinningurinn.

Risa menntaráðstefna og KÍ 25 ára

Þessi atriði eru þau stóru í starfinu á þessu ári en við skulum líka minnast þess að á árinu vorum við gestgjafar öflugustu menntaráðstefnu heims, þegar ISTP-ráðstefnan var haldin í Hörpunni. Þar vorum við í hópi öflugustu skólakerfa heims sem þeir jafningjar sem við erum á vettvangi metnaðarfulls skólastarfs og það var frábært að greina viðtökur gesta okkar þar.

Nú í haust héldum við skólamálaþing þar sem við fögnuðum því að 25 ár eru liðin frá því að Kennarasamband Íslands hið nýja var stofnað. Það var svo sannarlega gæfuspor fyrir íslenska kennara og í raun frábært að halda upp á 25 ára afmælið á ári sem var svo öflugur vitnisburður um mikilvægi samstöðunnar.

Viðburðaríkt ár framundan

Ég get svo auðvitað ekki annað en þakkað fyrir það traust sem félagsfólk hefur sýnt mér þegar í ljós kom að ég hefði hlotið endurkjör í formannsembættið þar sem ekki barst mótframboð við framboð mitt. Ég þigg það traust ykkar af auðmýkt og hlakka mjög til verkefnisins – að byggja ofan á góðan árangur okkar á ólíkum vettvangi starfs míns sem formanns fyrir ykkur.

Í dag kom svo í ljós að sama á við um Jónínu Hauksdóttur varaformann, sem nú er ljóst að verður með mér í brúnni. Það gleður mig mjög. Við höfum frá fyrsta degi verið sammála um þann kraft sem er að finna í sameinaðri kennarastétt í ólíkum skólagerðum og mikilvægi samstöðu stjórnar KÍ okkur öllum til heilla.

Ég hlakka til næsta árs, það verður sannarlega viðburðaríkt eins og öll þau 25 ár sem KÍ hefur starfað, saman náum við enn lengra á ólíkum sviðum öflugs stéttar- og fagfélags alls skólafólks!