Viðbragðsteymi vegna viðkvæmra hópa

Komið hefur verið á fót teymi til að draga úr þjónusturofi við viðkvæma hópa.
Félags- og barnamálaráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa komið á fót viðbragðsteymi til að draga úr þjónusturofi við viðkvæma hópa í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Teymið hefur það hlutverk að safna og miðla upplýsingum, meta stöðu sem upp getur komið og eftir atvikum bregðast við áhrifum COVID-19 faraldursins á mikilvæg þjónustukerfi á landsvísu, m.a. ef upp kemur sú staða að ekki sé mögulegt að veita lágmarksþjónustu til tiltekinna hópa eða einstaklinga til skemmri eða lengri tíma.
Tekið er ábendingum og fyrirspurnum á netfangið vidbragd@frn.is.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Stjórnarráðsins.