Við sköpum verðmætin

Fréttir|2. maí 2025

Kennarar fjölmenntu í sögulega kröfugöngu í Reykjavík í gær í tilefni af 1. maí, ásamt fleiri fulltrúum launafólks og verkalýðsfélaga. Boðið var upp á kaffi og kökur í Kennarahúsinu að loknum ræðhöldum.

Kennarar, skólafólk og forysta Kennarasambands Íslands safnaðist saman við Hallgrímskirkju með fána á lofti klukkan 13:00 í gær áður en slegist var í hópinn með öðrum verkalýðsfélögum landsins og gengið fylktu liði niður Skólavörðustíg og haldið á baráttufund á Ingólfstorgi þar sem ræðuhöld fóru fram og tónlistaratriði. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá baráttudegi verkalýðsins 2025 og vöfflukaffi í Borgartúni eftir herlegheitin.

Viðburður gærdagsins var sögulegur fyrir þær sakir að fulltrúaráð verkalýðsins í Reykjavík bauð nú Rauðsokkum að ganga fremst í kröfugöngunni með endurgerða Venusarstyttu í broddi fylkingar. En upphaf Rauðsokkahreyfingarinnar er að rekja til 1. maí 1970 þegar konur á rauðum sokkum mættu í kröfugöngu verkalýðsins með risastóra Venusarstyttu og lögðu fram kröfur sínar um kvenfrelsi. Fjölmiðlar sögðu frá því að Rauðsokkahreyfingin hefði borið styttuna í óþökk fulltrúaráðs verkalýðshreyfingarinnar og nokkuð stapp var um hvort þær fengju yfir höfuð að taka þátt í göngunni og úr varð að þær gengu aftast.

Risavaxin Venusarstytta, skreytt borða sem á stóð Manneskja, ekki markaðsvara, sem Rauðsokkur báru 1970 og vakti mikla eftirtekt, var því endurgerð af tilefninu. Upprunalega Venusarstyttan var gerð af Jóni Benediktssyni sem jafnframt á höfundarétt að henni fyrir leikmynd Messíönu Tómasdóttur í leikritinu Lýsisströtu. Eva Ísleifs listakona annaðist endurgerð styttunnar.

Að baráttufundi loknum bauð Kennarasambandið félagsfólki og förunautum í kaffi og með því í höfuðstöðvum sambandsins í Borgartúni 30. Mæting var frábær og um 200 manns lögðu leið sína í vöfflur í Kennarahúsinu þar sem Lúðrasveit verkalýðsins lék fyrir gesti með glæsibrag. 

Myndir frá 1. maí 2025