Við leitum svara hjá ykkur!

Félagsmenn KÍ hafa fengið sendan póst frá Félagsvísindastofnun HÍ. Þar er að finna hlekk á viðhorfskönnun KÍ. Félagsmenn eru hvattir til að opna póstinn og taka þátt.
Markmið könnunarinnar er að kanna hvaða verkefni og málefni brenna helst á félagsfólki og hvaða hlutverki KÍ eigi að gegna við að vinna að hagsmunum félagsfólks að þeirra mati.
Stjórn Kennarasambandsins horfir til niðurstaðna könnunarinnar sem mikilvægs hlekks í keðju stefnumörkunar fyrir starf sitt. Það þýðir að niðurstöðurnar munu hafa mótandi áhrif á starfsemi sambandsins á komandi misserum, svo sem varðandi hlutverk KÍ, áherslur í starfinu og veitta þjónustu.

Hvernig tek ég þátt?
Til að opna könnun og svara þarf að smella á hlekk sem finna má í tölvupósti frá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands sem barst félagsfólki KÍ, fimmtudaginn 1. febrúar.
Veglegir þátttökuvinningar í boði
Það er einstaklega mikilvægt að þátttaka og svörun sé góð. Með það fyrir augum mun þeim sem svara könnuninni gefast kostur á veglegum happdrættisvinningum á borð við:
- Helgi í Kjarnaskógi + gjafabréf í Skógarböðin fyrir 2 að andvirði 47.200 kr.
- Helgi í Ásabyggð á Flúðum + gjafabréf í Fontana fyrir 2 að andvirði 32.440 kr.
- Gjafabréf Icelandair að andvirði 30.000 kr.
- Helgi að eigin vali í orlofseign OKÍ að andvirði 20.000 kr.
- Veiðikortið 2024 að andvirði 7.900 kr.
Niðurstöðurnar verða kynntar á ráðstefnu á vegum sambandsins sem fer fram 9. apríl með það að markmiði að ná enn betri árangri í skólastarfi, eins og Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, fjallaði um í pistli fyrr á árinu.
Könnunin, sem unnin var í samstarfi við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands, er nafnlaus og það tekur um 8 til 12 mínútur að svara.