Við krefjumst kennarasamninga strax

Fréttir|12. febrúar 2014

Fundur trúnaðarmanna og formanna kennarafélaga í öllum framhaldsskólum landsins haldinn á Grand hóteli, Reykjavík, 13. febrúar 2014 ályktar eftirfarandi um stöðu samningaviðræðna við ríkið.

Sinnuleysi stjórnvalda á Íslandi til margra ára um launakjör í framhaldsskólum og margendurtekinn og grófur niðurskurður á fjármunum til framhaldsskólastigsins er alvarlegt samfélagsmein og ekki einkamál kennarastéttarinnar.

Kennurum og öðru félagsfólki KÍ í framhaldsskólum er annt um nemendur og hafa metnað fyrir hönd þeirra, skólanna sinna og menntunar í landinu. Einmitt þess vegna er okkur nóg boðið og segjum – hingað og ekki lengra.

Við krefjumst þess að stjórnvöld sýni kennarastarfinu þá virðingu að staðið sé við margra ára markmið um sambærileg kjör félagsmanna KÍ í framhaldsskólum og annarra sérfræðinga í þjónustu ríkisins.

Við krefjumst þess að stjórnvöld feli fulltrúum sínum strax að bera fram raunhæfar tillögur við samningaborðið um að leiðrétta launakjör í framhaldsskólum og að tryggja eðlilega launaþróun til frambúðar. Þannig og aðeins þannig getur skapast umræðugrundvöllur um framhaldsskóla framtíðarinnar við kennarastéttina.