Við getum, þorum og viljum!

Fréttir|24. apríl 2025

Fas, framkoma, ákvarðanir og stefnumótun valdhafa í fjölmennu landi geta haft alvarlegar afleiðingar og valdið bakslagi og mikilli afturför í jafnréttismálum, líka hér á landi, skrifar Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber, sérfræðingur KÍ í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum.

Ef við veitum ekki viðspyrnu og sýnum hvers megnug við erum er voðinn vís. Nú þegar er ljóst að skerðing réttinda hinsegin og trans fólks er staðreynd og um leið fær afvegaleiðandi orðræða hljómgrunn þar sem því er haldið fram að með inngildingu, fjölbreytileika og jafnrétti sé slegið af kröfum og öryggi fólks þegar rannsóknir og staðreyndir sýna hið gagnstæða. Þær sýna m.a. að farsælla er að hafa fjölbreytni, jafnrétti og inngildingu að leiðarljósi við stjórnun en að einsleitur forréttindahópur taki ákvarðanir fyrir hönd allra. Við vitum þetta!

Um 50 samtök femínista, kvenna, launa-fólks, fatlaðs fólks og hinsegin fólks hefur tekið höndum saman og ákveðið að árið 2025 verði kvennaár. Stjórnvöld hafa fengið afhentar kröfur og hafa tíma til 24. október 2025 til að breyta lögum og grípa til aðgerða. Kröfurnar eru verkfæri fyrir stjórnvöld svo taka megi næsta stóra skrefið í baráttunni og tryggja fullt og endanlegt jafnrétti kynjanna.

Kvennaár 1975 og 2025

Kvennaárið 2025 varð ekki til úr lausu lofti því í ár eru 50 ár frá kvennaári Sameinuðu þjóðanna og 50 ár frá fyrsta kvennafrídeginum, 24. október 1975, deginum þegar konur á Íslandi stöðvuðu samfélagið og lögðu niður launuð sem ólaunuð störf, deginum sem breytti hugum og lífi margra á Íslandi. Nefnt hefur verið að Vigdís Finnbogadóttir hefði líklega ekki verið kosin forseti nema vegna þessa dags og þessa árs. Og hversu fátæk værum við þá?

Konur tóku yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um að árið 1975 yrði alþjóðlegt kvennaár fagnandi, enda langþreyttar á því misrétti sem þær bjuggu við. Til starfa tók Kvennaársnefnd en í henni sátu fulltrúar stjórnvalda, samtaka launafólks, Rauðsokkahreyfingarinnar og annarra samtaka kvenna sem skipulögðu hluta þeirra viðburða sem fram fóru allt árið, en ýmis samtök kvenna og konur skipulögðu einnig viðburði um land allt.

Haldnar voru ráðstefnur um launa- og dagvistunarmál, fyrsta jafnréttisnefnd sveitarfélags var stofnuð í Kópavogi og gefin út bók um jafnrétti kynjanna auk hljómplötunnar Áfram stelpur. Sendar voru ályktanir og áskoranir og alþingismönnum sendar kröfur um frelsi til þungunarrofs og um lagabreytingar til að stuðla að jafnrétti, svo fátt eitt sé nefnt.

Magnús Ólafsson ljósmyndari festi á filmu þegar fólk safnaðist saman á Austurvelli 7. júlí 1915 til þess að fagna kosningarétti kvenna

Rauðsokkahreyfingin 55 ára

Konur á rauðum sokkum, hittumst á Hlemmi klukkan hálf eitt

Svohljóðandi var hádegistilkynning í útvarpinu hinn 1. maí árið 1970. Konur létu ekki segja sér það tvisvar þrátt fyrir mótbárur verkalýðsforkólfa og hópuðust í 1. maí göngu dagsins með hvatningarspjöld sem á stóð m.a. „vaknaðu kona“ og „konur nýtum mannréttindin“ og þar með var tónn kvennabaráttunnar og Rauðsokkahreyfingarinnar sleginn.

Þessi fyrsti viðburður hreyfingarinnar markaði upphafið að baráttu fyrir mannréttindum og kvenfrelsi og lagði þann grundvöll sem við byggjum jafnréttisbaráttu okkar á í dag.

Kröfurnar

Á 50 árum hefur margt gerst og samfélagið þroskast en enn er verk að vinna og breytinga er þörf. Kröfur Kvennaárs 2025 spretta ekki fram í tómarúmi heldur vegna ákalls og samstöðu fjölbreytts hóps yfir 50 samtaka. Kröfurnar snúa að vanmati á framlagi kvenna og kvára til samfélagsins og faraldurs kynbundins ofbeldis.

Einhver kynni að spyrja, er þetta ekki tóm þvæla? Nei. Á meðan 40% kvenna segja sögu um kynbundið ofbeldi og launamunur kynjanna er staðreynd er þetta ekki þvæla. Við berjumst áfram, við viljum fullt jafnrétti á öllum sviðum, við viljum jafnréttisparadísina sem um er rætt.

 


Hnefinn á loft. Kvennaverkfall 2023.

Við erum tilbúin

Kvennaverkfallið 2023 er stærsti útifundur Íslandssögunnar. Að auki voru haldnir viðburðir í tilefni dagsins á 21 stað um land allt. Samstaðan sýndi svo ekki verður um villst að við erum tilbúin til að taka við keflinu frá baráttukonunum sem á undan okkur komu. Valdefling, baráttugleði og skýrt ákall um breytingar einkenndu þessa gríðarlegu samstöðu rétt eins og árið 1975. Samfélag sem rís svo sterkt upp gegn ójafnrétti hefur alla burði til að verða raunveruleg jafnréttisparadís.

Dagskrá Kvennaárs 2025

Skipuð hefur verið framkvæmdastjórn Kvenna-árs 2025 sem mun skipuleggja viðburði, aðgerðir og vitundarvakningu. Vonir standa til að sem flest leggi baráttunni lið og finni leiðir til að setja Kvennaárið á dagskrá í sínu nærum-hverfi með því að leggja til eða skipuleggja viðburði, fræðslu, aðgerðir eða hvaðeina sem vekur samtal, samstöðu og stuðlar að jafnrétti kynjanna. Dagskrá má finna á síðunni www.kvennaar.is.