Við erum aldeilis til! – Valdefling kennara og áhrifamáttur
„Ef við viljum að á okkur sé hlustað verðum við að tala og ef við viljum að tekið sé mark á okkur verðum við sjálf að trúa því sem við segjum,“ skrifar Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara í Skólavörðuna.
Kennarasamband Íslands er virkur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi við önnur kennarasamtök og heildarsamtök kennara. KÍ mun t.d. gegna formennsku í Norrænu kennarasamtökunum, NLS, árið 2026 og munu ýmsir viðburðir, fundir og ráðstefnur, fara fram hér á landi á vettvangi þessa norræna samstarfs, bæði innan aðildarfélaganna og heildarsamtakanna. NLS hefur á tíðum beitt sér frammi fyrir Norræna ráðinu og Norrænu ráðherranefndinni.
KÍ á líka gott samstarf við Evrópusamtök kennara, ETUCE, og Alþjóðasamtök kennara, Education International, EI, en þau eiga í mjög góðu samstarfi við ýmsar Evrópustofnanir en þó sérstaklega Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, og Efnahags- og framfararstofnunina, OECD, Alþjóðavinnumálastofnunina, ILO, og framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna einnig. Mótun og eftirfylgni heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna er mjög gott dæmi um þetta samtal og samvinnu.
Þessi rótgróna og formlega samstaða kennarasamtaka um allan heim hefur skapað kennurum á heimsvísu sífellt sterkari rödd innan þeirra stofnana sem hafa mest áhrif á stefnumótun í menntamálum. Þetta má t.d. sjá á því hvernig talað er til kennara, kennarasamtaka og kennarastétta í opinberum skýrslum á borð við þær sem nefndar voru hér ofar. Þar er að fullu orðið ljóst að kennarar eru ekki bara hagsmunaaðilar eða þiggjendur umbótaaðgerða heldur er orðið viðurkennt og sýnilegt að kennarar verða að leika aðalhlutverkið í öllum breytingum.
Viðhorf og gildismat gagnvart kennurum
Að mati Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, OECD og Alþjóðasamtaka kennara stendur heimurinn allur frammi fyrir gríðarlegum áskorunum og eru þá nefndar helst hamfarahlýnun, rof og umturnun vegna áhrifa gervigreindar og annarrar tækni, vaxandi ójöfnuður og félagsleg sundrung. Farsæl úrlausn þessara áskorana byggi á því að efla menntakerfi allra þjóða þannig að þau geti tekið þeim grundvallarbreytingum sem á þarf að halda.
Þar sé algert lykilatriði að viðurkennt verði að það eru kennararnir sem eru og verða hreyfiaflið í slíkum breytingum, að kennurum verði tryggð bein aðkoma að stefnumótun og að þeir njóti trausts allra samfélaga til þess að framkvæma nauðsynlegar umbreytingar. Viðurkennt er af þessum stofnunum að því brýnna sé að vinna gegn alþjóðlegum kennaraskorti og að því að bæta slök kjör kennara um leið og öll samfélög verði að endurmóta viðhorf sín og gildismat gagnvart kennurum.

Þetta er ekkert smáræði – En skiptir þetta okkur hér uppi á Íslandi einhverju máli? Könnumst við ekki einmitt við fögur orð og fyrirheit sem svo ekkert verður úr? Er ekki endalaust verið að hampa kennurum og kalla þá til samráðsins endalausa sem reynist svo alls ekki vera það í raun? Jú, auðvitað!
Mig langar þó til þess að biðja fólk um að staldra við og hugsa málið. Það er mikilvægt að UNESCO, OECD og aðalframkvæmdastjóri SÞ stilli sér upp við hlið Alþjóðlegu kennarasamtakanna og lýsi því yfir að kennarar séu kjarninn í öllum menntaumbótum. Það skiptir verulegu máli að skilgreindur sé sérstakur samfélagslegur samráðsvettvangur þar sem kennarar hafa skýra aðkomu að ákvarðanatöku.
Það skiptir miklu máli að Ísland hafi verið gestgjafi eins stærsta viðburðar í samstarfi Education International og OECD í apríl 2025. Þessi viðburður heitir The International Summit of the Teaching Profession, ISTP, þar sem æðstu ráðamenn ríkjanna funda á jafningjagrunni með forystufólki kennarasamtaka og móta saman skuldbindandi aðgerðir í menntamálum. Skuldbindingar íslenskra menntayfirvalda til þessa starfsárs festa Kennarasambandið einmitt í sessi sem lykilaðila við mótun og framkvæmd heildstæðrar stefnu í málefnum kennara.
Sæti við borðið krefst hugrekkis
Grundvallarspurningin til okkar kennara og Kennarasambandsins er hvort við ætlum að taka þessu hlutverki alvarlega. Ætlum við að taka sætið sem búið er að taka frá fyrir okkur við borðið? Það er alls ekki áhættulaust því samráðsferli sem endar illa eða er ekki nema til að sýnast getur komið í bakið á okkur. En við höfum gjarnan haft uppi slagorðin „ekkert um okkur án okkar!“ og „talið við okkur, ekki um okkur!“ og þá verðum við líka að grípa þau tækifæri sem bjóðast af alvöru og ábyrgð.
Ef við viljum að á okkur sé hlustað verðum við að tala og ef við viljum að tekið sé mark á okkur verðum við sjálf að trúa því sem við segjum. Ef við ætlumst til þess að aðrir beri virðingu fyrir okkur verðum við sannarlega að gera það sjálf. Það krefst hugrekkis að taka að sér þetta hlutverk og það verðum við að hafa.
