Við erum að breyta heiminum

„Við erum að breyta heiminum. Það þýðir að við verðum að breyta viðhorfum, virkja krafta okkar og læra af hvert öðru.“ Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ fór með lokaorð á Þjóðfundi um framtíð skólaþjónustu í Hörpu í gær.
Magnús Þór ítrekaði mikilvægi þess að kennarar leiði ferlið við að móta framtíð skólaþjónustu á Íslandi. „Við kennarar, við sérfræðingarnir, erum að leiða stærsta hópinn. Við erum þau sem mætum börnunum. Við verðum að hafa rödd við borðið. Við verðum að vera virkir hluthafar í ferlinu.“
Orð formannsins rímuðu vel við það sem Donata H. Bukowska, kennari og sérfræðingur hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu, sagði í erindi sem hún flutti á fundinum um hlutverk kennarans í þrepaskiptu stuðningskerfi: „Það skiptir ekkert eins miklu máli og það sem við kennarar gerum á hverjum degi í skólastofunni okkar.“
Leitað lausna í sameiningu
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Sigrún Daníelsdóttir, verkefnastjóri hjá ráðuneytinu, Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Menntamálastofnunar, Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, og Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga héldu einnig erindi á Þjóðfundinum sem fór fram í Hörpu í gær.
Á fimmta hundruð manns; kennarar, kennsluráðgjafar, sérfræðingar, skólafólk, foreldrar og aðrir, sóttu fundinn og tóku þátt í samráðsferli ráðherra um ný heildarlög um skólaþjónustu. Tilgangurinn var að ræða niðurstöður samráðsins, varpa ljósi á álitamál og leita lausna í sameiningu.
Efling skólaþjónustu í fyrirrúmi
Þjóðfundur gærdagsins er liður í áformum Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, um að leggja fram ný heildarlög um skólaþjónustu. Markmið nýju laganna er að tryggja öllum skólum faglegt bakland í sínum fjölbreyttu verkefnum ásamt því að efla þverfaglega samvinnu milli skóla-, félags-og heilbrigðisþjónustu í þágu nemenda.
Ráðuneytið hefur lagt mikla áherslu á samstarf og samráð við fjölbreyttan hóp haghafa við gerð laganna. Þjóðfundur gærdagsins er liður í því. Næstu skref felast svo í því að vinna úr upplýsingum viðamikils samráðsferlisins áður en frumvarp til nýrra laga um skólaþjónustu verður lagt fram.