Við eigum að tala íslensku í skólanum

Fréttir|12. desember 2025
DSC 4129 (2)

Verkefnið Íslenskubrú Breiðholts er skilvirkt og sjálfbært verkefni sem snýr að mótun og miðlun íslensku sem annars tungumáls. Svava Jónsdóttir ræddi við Ástu Bjarneyju Elíasdóttur, skólastjóra Breiðholtsskóla um verkefnið.

Fjölgun erlendra nemenda í íslenskum grunnskólum hefur verið mikil síðustu ár og hefur ýmislegt verið gert til að taka vel á móti þeim hópi. Eitt af því er svokölluð Íslenskubrú sem er þverfaglegt samráð allra fimm grunnskólanna í Breiðholti, íslenskuvers Breiðholts, móttökudeildar Seljaskóla og Suðurmiðstöðvar til að mynda heildstæða og faglega umgjörð um íslenskunám nýkominna nemenda af erlendum uppruna.

Á heimasíðunni segir að markmiðið sé að kennsluhættir taki mið af fjölmenningarlegum nemendahópi, góðu flæði í íslenskunámi nemenda frá fyrstu móttöku og sjálfstæðri þátttöku þeirra í öllu skólastarfi. Þá segir að mynda eigi samfellda brú í íslenskukennslu nemenda þar sem umsjónarkennarar, íslenskukennarar og kennarar allra námssviða taki þátt, auk þess að efla samstarf heimila og skóla.

Nýtt þróunarverkefni

Ein af þeim tæplega tuttugu kennurum og skólastjórnendum í Breiðholti sem fara fyrir verkefninu er Ásta Bjarney Elíasdóttir, skólastjóri Breiðholtsskóla.

 

DSC 4068 (1)

 

„Það er áralöng hefð fyrir góðu samstarfi á milli skólanna í Breiðholti og stjórnendur skólanna hafa unnið mjög þétt, markvisst og faglega saman. Við fórum haustið 2022 saman til Svíþjóðar og kynntum okkur meðal annars Scandic St. Jörgen-skólann í Malmö, fengum kynningu frá skólaskrifstofunni og vorum að leita leiða og lausna varðandi hvað við gætum gert betur þegar kemur að íslensku sem öðru tungumáli (ÍSAT) vegna þess að það brennur á okkur hér í þessu fjölmenningarlega samfélagi.“

„Úr varð að við vildum styrkja samráðsvettvang milli ÍSAT-kennara. Það hafði verið reynt áður með utanaðkomandi leiðtoga en gekk ekki alveg nógu vel,“ segir Ásta Bjarney.

Eitt íslenskuver er rekið í hverjum borgarhluta og í Breiðholtsskóla er að finna íslenskuver Breiðholtsins. „Þar vorum við með öfluga konu, Erlu Guðrúnu Gísladóttur, sem tók að sér að stýra og leiða samráðið og þá fór það á flug. Samráðið vann vel saman en við sáum að verkefnin voru mörg og úr varð að móta þróunarverkefni til að vinna markvisst að því að safna saman og deila með hvert öðru námsefni, kennsluáætlunum, orðalistum og fleiru.“

„Ég hef verið talsmaður þess að allt sem við gerum sé sjálfbært, að það sé sjálfbærni í verkefnunum okkar og að þau séu ekki háð kröftugum kennurum eða einstaklingum heldur þannig unnin að fleiri geti nýtt þau annars staðar. Sérstaklega í svona nýju fagi sem íslenska sem annað mál er, þar sem vantar gögn og við erum að fá kennara inn í starfið sem hafa ekki áður kennt íslensku sem annað mál. Það er allt of lítið námsefni til en það er aðeins að glæðast.

„Við þurfum að hlúa að íslensku tungunni. Það er sótt að henni með enska málumhverfinu og samfélagsmiðlum“

„Við Erla hrintum af stað þessu þróunarverkefni sem er Íslenskubrú Breiðholts, sóttum um styrk úr þróunarsjóði menntamálaráðuneytisins og fengum fjármagn til að halda því úti. Þannig að Erla gat verið verkefnastjóri þessa verkefnis og þá fór þetta svolítið vel á flug. Það er svo margt hægt að gera ef það er starfsmaður í verkefninu.“

Útbúin var heimasíða, íslenskubrúbreiðholts.is, og segir Ásta að markmiðið með henni sé að kennari sem sé að fara að kenna íslensku sem annað mál geti farið þar inn og náð sér í gögn og kennsluáætlanir.

„Við erum með Aðalnámskrá grunnskóla sem segir okkur hver markmiðin eru. Síðan tekur við mikil vinna kennara við að gera kennsluáætlanir, skoða hvaða orðalista á að kenna, hvaða hugtökum á að byrja á og hvaða málfræði á að setja fyrst inn. Þetta má finna á heimasíðunni.“

Ásta bendir á að Íslenskuver Breiðholtsskóla sé frábært og þar hafa kennsluáætlanirnar á vef Íslenskubrúar verið prufukeyrðar, sem og hjá kennurum í skólum Breiðholts.

 

DSC 4033 (1)

 

Tilnefnt til verðlauna

Verkefnið Íslenskubrú Breiðholts var síðan tilnefnt til Íslensku menntaverðlaunanna í ár. „Við erum náttúrlega agalega stolt. Það er mikill heiður og góð vítamínsprauta inn í svona gott samstarf að fá þessa tilnefningu og viðurkenningu. Það er verið að segja að við séum að gera flotta hluti og það sé búið að taka eftir því. Mér finnst það fyrst og fremst hafa gefið þessum samráðsvettvangi eða þessu lærdómssamfélagi, af því að þetta er fyrst og fremst öflugt lærdómssamfélag fagkennara, vítamínsprautu til að halda áfram góðu verki.“

„Ég sat fyrsta samráðsvettvangsfundinn með þeim í haust og maður fann á hópnum að þau voru virkilega stolt af því sem þau voru að gera. Þau settust niður og brettu upp ermar og íhuguðu hvað ætti að gera næst.“

„Þetta er ekki bara verkefni sem á svo að leggja niður. Þau halda áfram og áfram að semja léttlestrarefni fyrir börn og unglinga en það er verið að búa til lestrarefni sem tengir við þann orðaforða sem þau eru að læra og nota. Þetta snýst alltaf um að byggja á því sem við höfum og búa svo til eitthvað meira sem styður við það sem við erum að gera og deila því með öðrum. Það á að halda áfram að efla heimasíðuna.“

 

Augljósar framfarir

Ásta segir að 66 prósent nemenda í Breiðholtsskóla séu af erlendum uppruna, og 32 prósent frekar nýkomin til landsins og þurfi markvissa kennslu í íslensku sem öðru máli. Íslenskuver Breiðholts og nú Íslenskubrúin léttir undir með kennurum í bekk.

Erlendir nemendur í 5. til 10. bekk eru 25 kennslustundir í viku í for- og 1. stigi ÍSAT í Íslenskuverinu og eru þess vegna minna inni í bekknum. „Þau eru meira að læra íslensku. Svo erum við alltaf að skoða hæfileika þeirra; í hvað þau geta líka farið. Einhver þeirra eru til dæmis að sækja enskukennslu eða stærðfræði í almennum bekk og fara kannski seinna í samfélags- og náttúrufræði. Við erum að skoða með kennurum hvað við gerum fyrir þau þegar þau fara á 2. stig ÍSAT í heimaskólanum sínum þannig að þau geti þá tekið virkan þátt, til dæmis í lífsleiknitímum eða náttúrufræðitímum. Það samtal á sér stað í vetur. Það er svolítið næsta stig hjá okkur.“

Ásta segir að framfarir séu augljósar í tengslum við markvissari kennslu í íslensku sem annars máls og sem fyrsta máls. „Við fórum nýlega yfir lesfimina, nemendur okkar tóku þátt í Svakalegu lestrarkeppninni í haust og svo erum við með alls konar bókaklúbba og lestrarmaraþon og við sjáum alveg framfarir hjá nemendum. Ég held að þessi áhersla á orðaforða og framburð skili sér til allra barna.“

DSC 4048 (2)

Við leggjum mikla áherslu á orðaforða, talað mál og framburð en við erum að vinna með orðaforða alla daga. Það hafa allir gott af því.

Íslenskuver fyrir lengra komna

Breiðholtsskóli er einnig með íslenskunámsver fyrir lengra komna (2.-3. stig ÍSAT) og léttir það undir með kennurum í bekk þegar erlendir nemendur kunna jafnvel ekkert í íslensku þegar þeir byrja í skólanum. Sérhæfðir ÍSAT-kennarar kenna þeim hópum. „Síðan verður meiri og meiri inngilding þegar þau eru tilbúin til að takast á við fleiri námsgreinar.“

Íslenskuverin eru annars vegar fyrir nemendur í 1. til 4. bekk og hins vegar í 5. til 10. bekk. „Móttakan þarf fyrst og fremst að vera styðjandi við nemandann. Við leggjum mikla áherslu á orðaforða, talað mál og framburð en við erum að vinna með orðaforða alla daga. Það hafa allir gott af því. Við sjáum að sú sterka áhersla skilar sér líka til íslenskra barna sem eiga íslenska foreldra. Við þurfum að hlúa að íslensku tungunni. Það er sótt að henni með enska málumhverfinu og samfélagsmiðlum.“

„Við erum með skýra málstefnu. Við eigum að tala íslensku í skólanum og við leggjum áherslu á að íslenska sé skólamálið. Nemendur mega alveg tala sitt tungumál í frímínútum og mega nota það sem brúarmál þegar þeir eru að tengja saman hugtök úr móðurmálinu yfir á íslensku, til dæmis yfir hugtök í stærðfræði. Þannig ná þeir betri hugtakaskilningi. Við vinnum markvisst með að tengja sjónrænt orðaforða og hugtök í öllum námsgreinum. Það græða allir á því.“