Við bjóðum góðan dag alla daga

Fréttir|5. febrúar 2021

Fögnum Degi leikskólans í dag.

Dagur leikskólans er 6. febrúar en á þeim degi fyrir 71 ári, árið 1950, stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Þetta er í 14. sinn sem deginum er fagnað. 

Við hvetjum leikskólakennara, leikskólastjóra og starfsfólk leikskólanna til að fagna Degi leikskólans. Það er upplagt að nýta daginn til að vekja athygli á frábæru faglegu starfi leikskólanna.

Einkunnarorð Dags leikskólans eru nú, eins og ævinlega: Við bjóðum góðan dag alla daga!

Myllumerkið er #dagurleikskolans2021.