Verzlunarskólinn skrifar undir kjarasamning

Fréttir|15. júní 2023

Fulltrúar Verzlunarskóla Íslands skrifuðu undir samkomulag Kennarasambands Íslands, vegna framhaldsskóla, (FF og FS), um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðila, í Borgartúni í dag, með fyrirvara um samþykki félagsmanna.

Gildistími samnings er frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024.

Kynningarfundur er áformaður á mánudag. Reiknað er með að atkvæðagreiðslu verði lokið miðvikudaginn 21. júní. Atkvæðisrétt hefur félagsfólk í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum í Verzlunarskólanum.

Kjörstjórn Kennarasambandsins mun upplýsa félagsfólk um fyrirkomulag atkvæðagreiðslunnar innan skamms.