Verum stolt af því hlutverki sem við gegnum

Skólavarðan ræddi við tvo tungumálakennara í framhaldsskólum og spurði hvaða áhrif kórónaveirufaraldurinn hefði haft á nám og kennslu.
„Málabrautir hafa verið á stöðugu undanhaldi lengi og þetta er afleit þróun. Ég tel að tungumálanám sé lykilatriði í því að byggja upp þekkingu á menningu og samfélagi og framhaldsskólinn gegni mikilvægu hlutverki í þessu. Mér finnst líka afskaplega neikvætt að það sé þannig að allir svokallaðir „sterkir“ nemendur leiti undantekningalítið á náttúrufræðibrautir, og ég held að sú tilhneiging sé bæði menningarlegt og andlegt slys, sem sagt bæði fyrir samfélagið í heild og líka fyrir marga einstaklinga,“ segir Ármann Halldórsson, enskukennari við Verzlunarskóla Íslands.
Spurður hvort þróun tungumálakennslu síðustu ár hafi verið í rétta átt segir Ármann: „Ég held að tungumálakennarar séu mjög öflugir fagmenn, t.d. í nýtingu á tækni og nýstárlegum kennsluaðferðum. Ég hef vissar áhyggjur af ákveðinni stöðnun í minni grein, enskunni, og gæti þá enska orðið „complacency“ mögulega átt við. Svo held ég að viðvarandi flótti frá málabrautum og mikil áhersla á vísindi og tækni virki demóralíserandi og dragi þrótt úr stétt tungumálakennara. Sú staðreynd að kennarar þriðja máls eru oft einyrkjar er heldur ekki jákvæð fyrir starfsþróun,“ segir Ármann og bætir við: „Ég vil þó leggja áherslu á að við öll, sem sinnum því mikilvæga hlutverki að kenna og fræða um erlend tungumál og menningu, berum höfuðið hátt og séum stolt af því lykilhlutverki sem við gegnum í samfélaginu.“
Ýmsar áskoranir hafa mætt kennurum á tímum COVID-19. Ármann segir sína upplifun á þann veg að tungumálakennarar hafi verið vel í stakk búnir að mæta þessari áskorun.
„Ég held að það sé alveg óhætt að segja að nýting rafrænna miðla hafi verið mikill styrkleiki tungumálakennara. Ég hef til dæmis fylgst með og kynnt mér starf kennara þriðja máls í þróun á fjarnámi hjá okkur í Versló og mín upplifun er að þar hafi verið mjög frjó og öflug þróun í gangi – mæli eindregið með að kynna sér það. Ég hef reyndar þá skoðun að þróun fjölbreyttra rafrænna kennslugagna í anda fjarnáms sé mun mikilvægari en að eyða tíma í endalausa tíma á Teams og Zoom, og held að á vissan hátt hafi verið farin skökk leið í þessu í skólunum haustið 2020,“ segir Ármann Halldórsson.
Ástæða til að staldra við
„Ég hef ákveðnar áhyggjur af stöðu þriðja máls og því að færri nemendur læra erlend tungumál en áður. Af þessari ástæðu finnst mér rétt að við stöldrum við og veltum upp hvort það geti verið að við séum á rangri leið með tungumálakennsluna,“ segir Katrín Högnadóttir, þýskukennari við Menntaskólann á Egilsstöðum.
„Ofuráhersla er á málfræðikennslu, en mín skoðun er sú að fjölbreytt sögu- og menningartengd kennsla ætti að vera mun fyrirferðarmeiri en raun ber vitni. Þannig tækju nemendur mögulega meira inn af fróðleik um land og þjóð og sæju í leiðinni fleiri tækifæri til að nota málið. Ég ætla auðvitað ekki að alhæfa um að þetta sé staðan alls staðar, en ég veit að víða er það staðreynd.“
Katrín segir að eftir styttingu náms til stúdentsprófs hafi efri áfangar erlendra tungumála víða dottið út.
„Áður höfðu nemendur náð ákveðinni hæfni þegar þeir tóku þessa áfanga og gátu því kafað dýpra og á annan hátt ofan í fagið. Þegar það er ekki lengur möguleiki, þá fá nemendur ekki að kynnast þeirri hlið fagsins og fara því mikils á mis. Mögulega er þetta einn vinkillinn á því að nemendur velja síður erlend tungumál. Enn einn vinkillinn gæti líka verið stafræni heimurinn sem við höfum í höndunum alla daga. Við erum orðin svo vön því að geta bara flett upp því sem þarf og látið google-translate þýða það sem þarf, á því tungumáli sem þörf er á hverju sinni. Mögulega hefur þetta orðið til þess að nemendur velja ekki tungumálanám, þar sem síminn færir okkur jú það sem við biðjum hann um og hví þá að leggja á sig alla vinnuna sem því fylgir að læra nýtt tungumál?
Sama hver ástæðan fyrir því er að færri velja tungumálanám nú en áður, þá finnst m+ staða tungumálanáms áhyggjuefni. Vegna þess að tungumálin verða okkur nefnilega alltaf lyklar að umheiminum og öllum möguleikunum sem hann býður okkur upp á.“
Katrín er að lokum spurð hvernig hafi gengið að halda úti kennslu á tímum COVID-19.
„Persónulega hefur mér fundist erfiðast að vera ekki í beinum tengslum við nemendur; að hitta þá ekki daglega í eigin persónu. Samskiptin eru svo óskaplega mikilvæg og gefa öllu svo miklu meiri dýpt. Einnig finnst mér áskorun að bjóða upp á fjölbreytt verkefni daglega og halda athygli og áhuga nemenda þegar hver og einn er heima hjá sér,“ segir Katrín Högnadóttir.
Viðtölin við Ármann og Katrínu voru í tengslum við viðtal við Hólmfríði Garðarsdóttur prófessor sem var birt í Skólavörðunni, 1. tbl. 2021.