Verum góðar fyrirmyndir og hegðum okkur vel á netinu

Kynnið ykkur ráðleggingar Siðaráðs.
Siðaráð hefur sett saman ráðleggingar um hegðun á netinu og sent til hátt á fimmta hundrað trúnaðarmanna Kennarasambandsins. Í kynningarbréfi Siðaráðs segir: „tilkoma samfélagsmiðla þar sem auðvelt er að koma skoðunum sínum á framfæri hafi til dæmis gert mörk einkalífs og vinnu óljósari sem og skoðanaskipti beinskeyttari og stundum óvægnari“.
Siðaráði hafa borist ábendingar um mikilvægi þess að settar séu saman leiðbeiningar fyrir félagsmenn KÍ um notkun netsins í starfi. Trúnaðarmenn eru beðnir að prenta skjalið út og hengja upp á viðeigandi stað. Þá hvetur Siðaráð til þess að starfsfólk skólanna ræði notkun netsins og samfélagsmiðla í starfi; bæði út frá samstarfsfólki og nemendum. „Það er að mörgu að huga; myndbirtingar, friðhelgi einkalífsins, ábyrgð á því sem sagt er og gert, virðing, einelti, ofbeldi, áreitni, góð samskipti, stafræn spor o.fl.,“ segir jafnframt í bréfi Siðaráðs.
Þá er minnt á að mikilvægt sé að í skólareglum sé að finna ákvæði um hótanir, ofbeldi og áreitni gagnvart nemendum og starfsfólki og að til séu verklagsreglur ef slíkt kemur upp.
10 góð ráð um hegðun okkar á netinu
Trúnaðarmannafræðsla frá 2015 hefur að geyma ýmsan fróðleik um málaflokkinn.