Verkföll samþykkt í Árbæjarskóla og Heiðarskóla

Tveir grunnskólar hafa bæst í hóp skóla þar sem félagsmenn Kennarasambandsins hafa boðað verkföll. Fyrstu verkföll hefjast á þriðjudag hafi samningar ekki náðst.
Niðurstaða í atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls í Árbæjarskóla í Reykjavík og Heiðarskóla í Reykjanesbæ liggur fyrir. Kennarar og stjórnendur í þessum tveimur skólum hafa samþykkt að boða verkfall 25. nóvember næstkomandi, hafi kjarasamningar ekki náðst. Um tímabundið verkfall er að ræða og gert er ráð fyrir að því ljúki 20. desember.
Það voru félagsmenn í Félagi grunnskólakennara (FG) og Skólastjórafélagi Íslands (SÍ), sem starfa í fyrrnefndum skólum, sem greiddu atkvæði um verkfallsboðun. Atkvæðagreiðsla stóð dagana 22. október til 24. október 2024.
Yfirgnæfandi meirihluti þátttakenda greiddi atkvæði með boðun verkfalls. Kjörsókn meðal félagsmanna FG og SÍ við Heiðarskóla var 100% og sögðu allir já við aðgerðum, eða 100%. Kjörsókn meðal félagsmanna FG við Árbæjarskóla var 98,36%. Já sögðu 98,33% og einn skilaði auðu, eða 1,67%. Kjörsókn meðal félaga SÍ við Árbæjarskóla var 100% og já sögðu 100%.
Aðgerðir boðaðar í þrettán skólum
Félagsmenn Kennarasambandsins í þrettán skólum hafa nú samþykkt að boða verkföll. Um er að ræða sex grunnskóla, fjóra leikskóla, tvo framhaldsskóla og einn tónlistarskóla. Fyrstu verkföll hefjast á þriðjudag í næstu viku hafi kjarasamningar ekki náðst.
Verkföll boðuð 29. október
- Leikskóli Seltjarnarness
- Leikskólinn Ársalir á Sauðárkróki
- Leikskólinn Drafnarsteinn í Reykjavík
- Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ
Boðuð verkföll í leikskólum eru ótímabundin.
- Áslandsskóli í Hafnarfirði
- Laugalækjarskóli í Reykjavík
- Lundarskóli á Akureyri
Um er að ræða tímabundin verkföll frá 29. október til 22. nóvember.
- Fjölbrautaskóli Suðurlands
- Tónlistarskóli Ísafjarðar
Ofangreind tvö verkföll eru tímabundin, boðuð frá 29. október til 20. desember.
Verkfall boðað 11. nóvember
- Menntaskólinn í Reykjavík
Um er að ræða tímabundið verkfall frá 11. nóvember til 20. desember.
Verkföll boðuð 25. nóvember
- Garðaskóli í Garðabæ
- Árbæjarskóli í Reykjavík
- Heiðarskóli í Reykjanesbæ
Verkföll í þessum skólum eru tímabundin, frá 25. nóvember til 20. desember.
Hér er hægt að kynna sér stöðuna í kjaramálum og fyrirhugaðar aðgerðir betur.