Verkföll KÍ dæmd ólögmæt – utan verkfall í Snæfellsbæ

Félagsdómur klofnaði í niðurstöðu sinni varðandi lögmæti verkfalla KÍ. Niðurstaða dómsins hefur í för með sér að verkföll í 20 skólum falla niður.
Félagsdómur hefur dæmt verkföll Kennarasambands Íslands, sem hófust 1. febrúar, í þrettán leikskólum og sjö grunnskólum ólögmæt. Verkfall KÍ í Leikskóla Snæfellsbæjar telst lögmætt.
Samband íslenskra sveitarfélaga stefndi KÍ í annað sinn fyrir tæpri viku og krafðist þess að staðfest yrði að verkföll KÍ væru ólögmæt með vísan til þess að verkfall skuli ná til allra starfsmanna í viðkomandi stéttarfélagi hjá þeim vinnuveitanda sem verkfall beinist gegn. Leit Sambandið því svo á að hvert og eitt sveitarfélag sé vinnuveitandi kennara í skilningi laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna, en ekki einstaka skólar.
Þrír af fimm dómurum Félagsdóms tóku undir þetta sjónarmið og á þeim forsendum eru verkföllin dæmd ólögmæt, utan verkfall í Leikskóla Snæfellsbæjar, en sá leikskóli er sá eini í sveitarfélaginu og því taldi dómurinn verkfallsboðunina þar vera lögmæta
Tveir dómarar skiluðu sératkvæði og töldu að sýkna ætti Kennarasambandið.
Í ljósi niðurstöðu Félagsdóms vill Kennarasambandið koma því skýrt á framfæri við félagsfólk sem lagði niður störf vegna verkfalla þann 1. febrúar sl. að það mæti til vinnu í fyrramálið og sinni sínum hefðbundnu störfum.
Viðbrögð formanns KÍ í fjölmiðlum
- Útilokar ekki frekari aðgerðir – Vísir 9. febrúar 2025
- Ljóst mál að fólk mætir í vinnuna í morgun – MBL 9. febrúar 2025