Verkföll í sex skólum hófust á miðnætti

Samband íslenskra sveitarfélaga tók ekki afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara í gærkvöld. Verkföll hófust á miðnætti í fimm framhaldsskólum og einum tónlistarskóla.
Samninganefnd sveitarfélaga óskaði í gærkvöld eftir fresti til hádegis í dag til að taka afstöðu til innanhússtillögu ríkissáttasemjara.
Tímafrestur sáttasemjara var til tíu í gærkvöld en viðræðunefnd KÍ samþykkti tillöguna fyrir sitt leyti síðdegis í gær.
Viðræðunefnd KÍ veitti samþykki fyrir frestuninni á ellefta tímanum í gærkvöld.
Þessi staða hefur í för með sér að verkföll eru hafin í fimm framhaldsskólum; Borgarholtsskóla, Menntaskólanum á Akureyri, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Verkmenntaskóla Austurlands og Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Þessi verkföll taka til félagsmanna í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum, sem starfa í fyrrgreindum skólum.
Auk þess er hafið verkfall í Tónlistarskóla Akureyrar. Verkfallið tekur til félagsmanna í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum sem starfa í Tónlistarskóla Akureyrar.
Þá er vert að geta þess að félagsmenn í Félagi leikskólakennara, sem starfa í Leikskóla Snæfellsbæjar, hafa verið í verkfalli síðan 1. febrúar og munu verða áfram.