Verkföll í átta skólum samþykkt

Fréttir|10. október 2024

Félagsmenn fimm aðildarfélaga KÍ hafa samþykkt verkföll í fjórum leikskólum, þremur grunnskólum og einum framhaldsskóla.

Kjörstjórn Kennarasambands Íslands kynnti rétt í þessu niðurstöður atkvæðagreiðslna um verkfallsaðgerðir í lok mánaðar. Meirihluti í þeim átta skólum, þar sem kosning fór fram, sagði já við fyrirhuguðum verkföllum. Áformað er að aðgerðir hefjist 29. október.

Atkvæði voru greidd í fjórum leikskólum, þremur grunnskólum og einum framhaldsskóla. Atkvæðisrétt höfðu félagsmenn aðildarfélaga Kennarasambandsins sem starfa í viðkomandi skólum og taka laun samkvæmt kjarasamningum KÍ.

Þetta voru félagsmenn í Félagi grunnskólakennara, Félagi leikskólakennara, Félagi framhaldsskólakennara, Félagi stjórnenda í framhaldsskólum og Skólastjórafélagi Íslands.

Þetta þýðir að verkföll hafa verið boðuð í eftirtöldum leikskólum:

  • Leikskóli Seltjarnarness
  • Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ
  • Leikskólinn Drafnarsteinn í Reykjavík
  • Leikskólinn Ársalir á Sauðárkróki

Verkfallsaðgerðir í leikskólum hefjast 29. október og eru ótímabundnar, hafi kjarasamningar ekki náðst.

Samþykkt hafa verið verkföll í eftirtöldum grunnskólum:

  • Áslandsskóli í Hafnarfirði
  • Laugalækjarskóli í Reykjavík
  • Lundarskóli á Akureyri

Verkföll í þessum skólum skella á 29. október og standa til 22. nóvember, hafi samningar ekki náðst.

Samþykkt hefur verið verkfall í framhaldsskóla:

Verkfall í Fjölbrautaskóla Suðurlands hefur verið samþykkt og hefst 29. október og stendur til 20. desember, hafi samningar ekki náðst.

Þá stendur yfir atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna KÍ í einum tónlistarskóla. Þar er boðað að verkfall hefjist 29. október og standi til 20. desember. Niðurstaða þessarar atkvæðagreiðslu verður gerð heyrinkunn á morgun, föstudaginn 11. október, eftir að atkvæðagreiðslu lýkur klukkan 15:00.

Þess má og geta að félagsmenn í Félagi stjórnenda leikskóla kjósa ekki um verkfall þar sem þeir hafa ekki verkfallsrétt.

Samningaviðræðurnar

Aðildarfélög KÍ ganga saman að samningaborðinu og í nefndinni eiga sæti formenn FF, FG, FL, FLS, FS, FT og SÍ ásamt formanni  Kennarasambandsins, Magnúsi Þór Jónssyni.

Samningafundur viðræðunefndar og samningsaðila fór fram í húsakynnum ríkissáttasemjara í gær.