Verkföll hafin í fjórtán leikskólum og sjö grunnskólum

Samningafundi í kjaradeilu KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga annars vegar og ríkisins hins vegar lauk um tíuleytið í kvöld, án árangurs. Vonbrigði, segir formaður KÍ.
Verkföll eru skollin á meðal félagsmanna Félags leikskólakennara, Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands, sem starfa í fjórtán leikskólum og sjö grunnskólum víða um landið.
Samningafundir viðræðunefndar KÍ og samninganefnda ríkis og sveitarfélaga hafa staðið yfir nær sleitulaust síðustu daga. Ríkissáttasemjari lagði fram innanhússtillögu um miðja síðustu viku. Ekki náðist samkomulag um innihald tillögunnar og var viðræðum hætt um tíuleytið í kvöld, sunnudaginn 2. febrúar.
„Það eru okkur mikil vonbrigði að aðilar hafi ekki náð að klára verkefnið og þar með forða verkföllum sem nú eru skollin á. Við gerðum allt sem í okkar valdi stóð til að ná samningum en allt kom fyrir ekki. Nú stöndum við öll saman. Áfram KÍ,“ segir Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ.
Verkföllum var frestað 29. nóvember síðastliðinn og sett á friðarskylda til 1. febrúar. Þar sem friðarskylda er ekki lengur við lýði má búast við að undirbúningur frekari verkfallsaðgerða hefjist nú.
Ótímabundin verkföll eru hafin í eftirtöldum leikskólum
- Leikskóli Seltjarnarness
- Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ
- Leikskólinn Drafnarsteinn í Reykjavík
- Leikskólinn Ársalir á Sauðárkróki
- Leikskóli Snæfellsbæjar
- Hulduheimar á Akureyri
- Höfðaberg í Mosfellsbæ
- Lundaból í Garðabæ
- Lyngheimar í Reykjavík
- Lyngholt á Reyðarfirði
- Óskaland í Hveragerði
- Rauðhóll í Reykjavík
- Stakkaborg í Reykjavík
- Teigasel á Akranesi
Tímabundin verkföll eru hafin í eftirtöldum grunnskólum og standa til 21. febrúar næstkomandi, hafi samningar ekki náðst.
- Árbæjarskóli í Reykjavík
- Garðaskóli í Garðabæ
- Heiðarskóli í Reykjanesbæ
Tímabundin verkföll eru hafin í eftirtöldum grunnskólum og standa til 26. febrúar næstkomandi, hafi samningar ekki náðst.
- Egilsstaðaskóli á Egilsstöðum
- Engjaskóli í Reykjavík
- Grundaskóli á Akranesi
- Lindaskóli í Kópavogi
Kennarasambandið gengur fram sem ein heild að samningaborðinu og er viðræðunefndin skipuð formönnum aðildarfélaganna sjö auk formanns KÍ.