Verkföll boðuð í fjórum sveitarfélögum

Félag leikskólakennara boðar verkfall í öllum leikskólum Kópavogs. Félag grunnskólakennara og Skólastjórafélag Íslands, boða verkföll í grunnskólum í þremur sveitarfélögum; Akraneskaupstað, Hveragerðisbæ og Ölfusi.
Félagsfólk Félags leikskólakennara (FL) sem starfar hjá Kópavogsbæ hefur samþykkt verkfallsboðun frá 3. mars næstkomandi. Leikskólar í Kópavogi eru 22 talsins. Verkföllin verða ótímabundin. Eftir helgi hefjast einnig atkvæðagreiðslur um ótímabundin verkföll í öllum leikskólum Hafnarfjarðar og Fjarðabyggðar.
Félagsfólk í Félagi grunnskólakennara (FG) og Skólastjórafélagi Íslands (SÍ), sem starfar hjá sveitarfélögunum Ölfusi, Hveragerðisbæ og Akraneskaupstað, hefur jafnframt samþykkt verkfallsboðun frá 3. mars næstkomandi. Einn grunnskóli er í Ölfusi, einn í Hveragerðisbæ og tveir í Akraneskaupstað. Verkfallsboðun nær einnig til félagsfólks sem starfar á skólaskrifstofum sveitarfélaganna. Verkföll grunnskólafélaganna verða tímabundin og standa til og með 21. mars 2025.
Félagsfólk FG, FL og SÍ, sem starfar í fyrrgreindum sveitarfélögum, samþykkti verkfallsboðun með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Kjörsókn var í öllum tilfellum góð, á bilinu 60% til 100%. Atkvæðagreiðsla stóð dagana 13.-14. febrúar.
Aðrar verkfallsaðgerðir
Ótímabundið verkfall stendur yfir í Leikskóla Snæfellsbæjar en það hófst 1. febrúar síðastliðinn. Boðuð hafa verið verkföll í fimm framhaldsskólum; Borgarholtsskóla, Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Menntaskólanum á Akureyri, Verkmenntaskólanum á Akureyri og Verkmenntaskóla Austurlands 21. febrúar næstkomandi, hafi samningar ekki náðst. Um ótímabundin verkföll er að ræða.
Félagsfólk í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, sem starfar í Tónlistarskóla Akureyrar, hefur jafnframt samþykkt boðun verkfalls frá og með næsta föstudegi, 21. febrúar. Verkfallið verður tímabundið og stendur til og með 4. apríl, hafi samningar ekki náðst.