Verkföll boðuð í fjórum grunnskólum í janúar

Fréttir|21. nóvember 2024
Debivort, CC BY-SA 3.0, Wikimedia Commons

Félagsfólk KÍ í Egilsstaðaskóla, Engjaskóla, Grundaskóla og Lindaskóla hefur samþykkt, með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða, boðun verkfalls í janúar 2025.

Niðurstaða í atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls í Egilsstaðaskóla á Egilsstöðum, Engjaskóla í Reykjavík, Grundaskóla á Akranesi og Lindaskóla í Kópavogi liggur fyrir. Kennarar og stjórnendur þessara skóla hafa samþykkt að boða verkfall 6. janúar 2025. Verkfallið er tímabundið og því lýkur 31. janúar 2025, hafi kjarasamningar ekki náðst. 

Félagsmenn í Félagi grunnskólakennara (FG) og Skólastjórafélagi Íslands (SÍ), sem starfa í fyrrnefndum skólum, greiddu atkvæði um verkfallsboðunina. Atkvæðagreiðsla stóð dagana 19. nóvember – 21. nóvember 2024. 

Kjörsókn var á bilinu 96 til 100 prósent. Já sögðu 98 til 100 prósent þeirra sem greiddu atkvæði. 

Aðgerðir í sautján skólum

Félagsmenn Kennarasambandsins í sautján skólum hafa nú samþykkt verkföll, sum eru hafin en önnur eru boðuð í næstu viku og í byrjun janúar. 

Leikskólinn

  • Verkföll hófust í fjórum leikskólum 29. október síðastliðinn. Þetta eru Leikskóli Seltjarnarness, Holt í Reykjanesbæ, Drafnarsteinn í Reykjavík og Ársalir á Sauðárkróki.
    Verkföll þessi eru ótímabundin.

Grunnskólinn

  • Verkföll hófust í þremur grunnskólum 29. október síðastliðinn. Þetta eru Áslandsskóli í Hafnarfirði, Laugalækjarskóli í Reykjavík og Lundarskóli á Akureyri.
    Verkföllin eru tímabundin og lýkur á morgun, föstudaginn 22. nóvember.
  • Næstu verkföll í grunnskólum hefjast á mánudag, 25. nóvember. Þá fer félagsfólk KÍ í Garðaskóla í Garðabæ, Árbæjarskóla í Reykjavík, og Heiðarskóla í Reykjanesbæ í verkfall.
    Verkföllin eru tímabundin, standa til 20. desember, hafi samningar ekki náðst.
  • Þá hafa nú verið boðuð verkföll í fjórum grunnskólum frá og með 6. janúar 2025. Hér eru undir Egilsstaðaskóli á Egilsstöðum, Grundaskóli á Akranesi, Engjaskóli í Reykjavík og Lindaskóli í Kópavogi. 
    Verkföllin eru tímabundin og munu standa til 31. janúar 2025, hafi samningar ekki náðst. 

Framhaldsskólinn

  • Félagsfólk KÍ í Fjölbrautaskóla Suðurlands hefur verið í verkfalli síðan 29. október síðastliðinn. 
  • Félagsfólk KÍ í Menntaskólanum í Reykjavík hefur verið í verkfalli síðan 18. nóvember síðastliðinn. 
    Verkföllin eru tímabundin og standa til 20. desember næstkomandi, hafi samningar ekki náðst.

Tónlistarskólinn

  • Félagsfólk KÍ í Tónlistarskóla Ísafjarðar hefur verið í verkfalli síðan 29. október síðastliðinn.
    Verkfallið er tímabundið og stendur til 20. desember, hafi samningar ekki náðst.

 

 

 

Hér er hægt að kynna sér stöðuna í kjaramálum og fyrirhugaðar aðgerðir betur.