Verkföll boðuð í fimm framhaldsskólum

Fréttir|5. febrúar 2025

Verkföll hefjast í Menntaskólanum á Akureyri, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Borgarholtsskóla, Verkmenntaskóla Austurlands og Fjölbrautaskóla Snæfellinga 21. febrúar, hafi samningar ekki náðst.

Kjörstjórn Kennarasambandsins kynnti niðurstöður í atkvæðagreiðslum um boðun verkfalla í fimm framhaldsskólum rétt í þessu.

Félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara (FF) og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum (FS) í Borgarholtsskóla, Menntaskólanum á Akureyri, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Verkmenntaskóla Austurlands og Fjölbrautaskóla Snæfellinga greiddu atkvæði um boðun verkfalla. 

Verkfallsaðgerðir voru, í öllum fimm skólunum, samþykktar með yfirgnæfandi meirihluta. Kjörsókn var í öllum tilfellum góð eða á bilinu 88% til 100%. Atkvæðagreiðsla stóð dagana 3.-5. febrúar 2025.

Náist ekki samkomulag um kjarasamninga hefjast verkföll í þessum skólum 21. febrúar næstkomandi. Verkföllin verða ótímabundin. 

Þá er vert að geta þess að kjaraviðræðum Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum og Verzlunarskóla Íslands hefur verið vísað til ríkissáttasemjara. 

Önnur lota verkfalla

Kjaradeila KÍ við ríki og sveitarfélög á sér langan aðdraganda og hófst önnur verkfallslota í leik- og grunnskólum á mánudag. Kennarar í Fjölbrautaskóla Suðurlands fóru í verkfall 29. október síðastliðinn og kennarar í Menntaskólanum í Reykjavík hófu verkfall 18. nóvember síðastliðinn. Í báðum tilfellum stóð til að verkföllin yrðu tímabundin, myndu standa til 20. desember. Til þess kom þó ekki því þann 29. nóvember frestaði Kennarasambandið öllum verkföllum, í leik-, grunn, framhalds- og tónlistarskólum, til 1. febrúar 2025. 

 

Skoða lista yfir skóla í verkfalli

Skoða upplýsingasíðu um verkföll