Verkföll boðuð í einum tónlistarskóla og fimm framhaldsskólum

Verkföll hefjast í fimm framhaldsskólum og einum tónlistarskóla föstudaginn 21. febrúar næstkomandi, hafi samningar ekki náðst.
Félagsfólk Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, sem starfar í Tónlistarskóla Akureyrar, fer í verkfall föstudaginn 21. febrúar næstkomandi. Verkfallið í Tónlistarskóla Akureyrar verður tímabundið og stendur til og með 4. apríl 2025, hafi samningar ekki náðst.
Félagsfólk í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda framhaldsskóla, sem starfar í fimm framhaldsskólum, fer í ótímabundið verkfall föstudaginn 21. febrúar næstkomandi, hafi samningar ekki náðst.
Skólarnir sem um ræðir eru Borgarholtsskóli, Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Menntaskólinn á Akureyri, Verkmenntaskólinn á Akureyri og Verkmenntaskóli Austurlands.
Þá er vert að geta þess að kjaraviðræðum Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum og Verzlunarskóla Íslands hefur verið vísað til ríkissáttasemjara.