Verkferlar KÍ vegna ofbeldis og hótana í garð kennara eru skýrir

Mikilvægt er að kynna sér viðbragðsáætlanir þegar atvik koma upp svo viðbrögð verði örugg og fumlaus.
Sniðmát að viðbragðsáætlun, áhættumati og atvikaskráningu vegna ofbeldis í skólum er að finna á vef Kennarasambandsins. Enn fremur má finna gagnlegar upplýsingar um efnið á sama stað. Sniðmátið er frá 2020 og hefur mælst vel fyrir. Það er í stöðugri endurskoðun.
Stjórnendur, trúnaðarmenn og allt starfsfólk skóla er hvatt til að kynna sér efnið. Mikilvægt er að hver og einn þekki viðbragðsáætlanir þegar atvik koma upp svo viðbrögð verði fumlaus og örugg.
Hver skóli þarf að hafa skýrar línur hvar mörk ofbeldis og hótana liggja. Mikilvægt er að allir, bæði starfsfólk og nemendur taki þátt í því að smíða ramma utanum hugtökin hótun og ofbeldi svo meðvitund vakni meðal allra. Þegar allir vita hvað er ofbeldi og hvenær hótun er alvarleg verða mörkin skýrari. Það hjálpar öllum þegar mörkin eru ljós sérstaklega börnum. Rannsóknir á Norðulöndunum sýna að um leið og umræða um hótanir og ofbeldi gegn kennurum fer af stað og mörk ofbeldis eru skilgreind meðal allra innan skóla, fækkar atvikum og öryggi allra eykst.
Atvikaskráning hefur aldrei verið mikilvægari bæði vegna réttinda starfsfólks og í sögulegu tilliti. Skráning atvika, stórra sem smárra þarf að vera vani innan allra skóla. Atvikaskráning er á ábyrgð stjórnanda sem getur falið öðrum utanumhald.
Viðbragðsáætlunina þarf að virkja. Það er í valdi hvers skóla að gera áhættumat og kynna æskileg viðbrögð, hver gerir hvað og hvernig. Um leið og allir vita hvernig ber að bregðast við og hvenær líður öllum betur og sálrænt öryggi eykst.