Verkfallsstjórn hefur tekið til starfa

Fréttir|17. mars 2014

Verkfallsstjórn FF kom saman til fundar í Kennarahúsinu í morgun. Að sögn Sigurðar Inga Andréssonar, formanns verkfallsstjórnar, er unnið að því að safna saman upplýsingum um þau álitamál sem geta komið upp; hvað má og hvað má ekki í verkfalli?

„Skólinn er mikið breyttur frá því um aldamótin. Tölvusamskipti eru stór þáttur í kennslu kennara og landslagið er gjörbreytt þegar kemur að kennsluefni sem liggur á netinu. Skólinn er orðinn flóknari og það eru fjöldamörg atriði sem við þurfum að taka á og fara í gegnum,“ segir Sigurður Ingi. Hann segir verkfallsvörslu komna í gang og fyrirhugað sé að vera með starfsfólk í stærstu skólunum sem getur brugðist við ef þörf þykir.

Útgáfustjórn vegna verkfallsins hefur tekið til starfa. Stefnt er að daglegri útgáfu rafræns fréttabréfs og öflugri miðlun upplýsinga á vefsíðu KÍ. Hægt er að senda upplýsingar á netfangið kynningarnefnd@ki.is.

Samninganefndir FF og FS halda áfram kjaraviðræðum í húsakynnum ríkissáttasemjara klukkan 14 í dag.